Íþróttahús við MH

Mánudaginn 13. október 1997, kl. 15:11:16 (372)

1997-10-13 15:11:16# 122. lþ. 7.1 fundur 42#B íþróttahús við MH# (óundirbúin fsp.), KÁ
[prenta uppsett í dálka] 7. fundur

[15:11]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Hinn 22. sept. 1996, á 30 ára afmæli Menntaskólans við Hamrahlíð, hafði hæstv. menntmrh. uppi góð orð um úrbætur í íþróttamálum Menntaskólans við Hamrahlíð. Ég hef farið í gegnum frv. til fjárlaga fyrir næsta ár og það er afar erfitt að átta sig á hvort þar er að finna nokkrar úrbætur eða hvort von sé á úrbótum í þessu máli. Því vil ég spyrja hæstv. menntmrh.: Hvað líður áformum um byggingu íþróttahúss við Menntaskólann við Hamrahlíð?