Svavar Gestsson (andsvar):
Herra forseti. Ég endurtek spurningu mína frá í ræðu minni og öðru andsvari, en hæstv. ráðherra getur þá svarað henni síðar í umræðunni. Hún er þessi: Hefur hann farið í viðræður við utanrrn. um að gerðar verði breytingar á Keflavíkurflugvelli þannig að þær gætu í undantekningartilvikum tekið við því flugi sem fer ella á þessa braut? (Samgrh.: Það hef ég ekki gert.)