Markaðshlutdeild fyrirtækja

Miðvikudaginn 05. nóvember 1997, kl. 15:31:58 (1015)

1997-11-05 15:31:58# 122. lþ. 19.9 fundur 214. mál: #A markaðshlutdeild fyrirtækja# (sjávarútvegs- og fiskvinnslufyrirtæki) fsp. (til munnl.) frá sjútvrh., SvanJ
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur

[15:31]

Svanfríður Jónasdóttir:

Herra forseti. Eins og ég sagði áðan eru það athyglisverðar upplýsingar sem verið er að kalla hér eftir en ég sé samt ekki hvernig hv. þm. ætlar að leiða þær upplýsingar sem hann fær út úr fyrirspurnum sínum til einhverrar niðurstöðu í því máli sem snýr að kvótanum vegna þess að annars vegar er um að ræða sameiginlega auðlind í eigu þjóðarinnar, sem takmarkaður aðgangur er að og hins vegar er um að ræða atvinnugreinar sem öllum er frjálst að stunda. Á þessu er slíkur reginmunur að ég átta mig ekki alveg á því hvert hv. þm. ætlar sér að leiða umræðuna.