Loftslagsbreytingar

Mánudaginn 17. nóvember 1997, kl. 18:33:59 (1307)

1997-11-17 18:33:59# 122. lþ. 26.8 fundur 180. mál: #A loftslagsbreytingar# skýrsl, HG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur

[18:33]

Hjörleifur Guttormsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Ekki hef ég á móti því að við reynum að skoða þetta í heildarsamhengi, síður en svo. Varðandi markmiðin að baki orkusáttmála Evrópu erum við kannski ekki á einu máli hvað knúði þann vagn. Ég er ekki sannfærður um skýringu hv. þm. en það má liggja til hliðar. Viðfangsefnið er alþjóðasamningur varðandi losun gróðurhúsalofttegunda og meðan þetta er ekki tekið saman hefur það út af fyrir sig ekki mikið praktískt gildi þó við veltum vöngum yfir þessu samhengi sem ég er alveg tilbúinn að ræða og hv. þm. hefur nefnt.