Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Forseti vill geta þess að um kl. 13.30 fer fram atkvæðagreiðsla og önnur aftur síðdegis. Ég vil minna á að í komandi viku verða einvörðungu nefndastörf og mikilvægt er að koma málum til nefnda í lok þessa þingdags.
Forseti vill enn fremur tilkynna að hv. 14. þm. Reykv., Kristín Ástgeirsdóttir, hefur óskað eftir að flytja þingheimi tilkynningu.