Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar):
Herra forseti. Það er alveg skýrt að þeir bátar sem flytja sig úr róðrardagakerfinu yfir í þorskaflahámarkskerfið flytja þá veiðireynslu sem þeir höfðu á viðmiðunarárunum og sú veiðiheimild flyst þá úr sóknardagapottinum yfir í þorskaflahámarkspottinn. Það eru alveg skýrar reglur um þetta í frv.