Fjárlög 1998

Föstudaginn 12. desember 1997, kl. 18:12:13 (2061)

1997-12-12 18:12:13# 122. lþ. 41.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 1998# frv., LMR (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur

[18:12]

Lára Margrét Ragnarsdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka svör hv. þm. Margrétar Frímannsdóttur. Eins og ég sagði ítrekað í ræðu minni kalla ég á samstarf og umræður þingheims alls bæði í stjórnarandstöðu sem stuðningsfólks stjórnarinnar til að leysa úr málum heilbrigðisþjónustunnar og virkja markvisst umræðu um þessi mál með framtíðarsýn í huga.