Fjárlög 1998

Laugardaginn 13. desember 1997, kl. 14:11:13 (2126)

1997-12-13 14:11:13# 122. lþ. 42.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 1998# frv. 150/1997, SJóh (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur

[14:11]

Sigríður Jóhannesdóttir:

Hæstv. forseti. Í mjög vel rökstuddu plaggi sem forsvarsmenn Háskóla Íslands lögðu fyrir fjárln. fóru þeir fram á 130 millj. kr. í viðbótarframlög til háskólans svo að hann gæti hvað varðar aðbúnað staðist samanburð við sambærilegar stofnanir erlendis. Þessu erindi var ekki svarað nema að hluta og því leggjum við minnihlutamenn til í tillögunni að til tölvu- og tækjakaupa í Háskóla Íslands verði sérstaklega veitt 80 millj. Þingmaðurinn segir já.