Guðný Guðbjörnsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég vil hönd okkar alþingismanna þakka hæstv. forseta fyrir trausta forustu hans á haustþinginu og einkar gott samstarf við þingflokksformenn og þingmenn alla. Skipulag þingstarfa hefur verið gott á þessu hausti og starfsáætlun haldist í stórum dráttum. Kvöldfundir hafa verið með færra móti þó að síðasta starfsvika fyrir jólafrí hafi verið löng og ströng að venju.
Ég þakka forseta hlý orð í garð okkar þingmanna og vil fyrir okkar hönd óska forseta og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Ég vil jafnframt þakka starfsfólki þingsins fyrir dugnað og þolinmæði í okkar garð og óska þeim gleðilegra jóla.
Ég bið hv. þingmenn að taka undir góðar óskir til hæstv. forseta og fjölskyldu hans með því að rísa úr sætum. --- [Þingmenn risu úr sætum.]