Ferill 22. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 22 – 22. mál.
Skýrsla
dóms- og kirkjumálaráðherra um störf eftirlitsnefndar með framkvæmd mannanafnalaga, nr. 45/1996.
(Lögð fyrir Alþingi á 122. löggjafarþingi 1997–98.)
1. INNGANGUR
Ýmislegt í lögum nr. 37/1991 þótti til bóta. Þau höfðu að geyma margvísleg mikilvæg nýmæli. Má þar nefna:
1. Kveðið var á um skipun mannanafnanefndar, sem m.a. hefur það hlutverk að semja mannanafnaskrá og skera úr ágreiningi um mannanöfn.
2. Yfirstjórn mannanafnamála var færð frá menntamálaráðherra til dómsmálaráðherra.
3. Erlendir menn, sem gerðust íslenskir ríkisborgarar, voru ekki lengur skyldaðir til að leggja niður nafn sitt heldur nægði að þeir tækju sér eitt íslenskt nafn til viðbótar eiginnafni sínu. 1
4. Kynjamisrétti mannanafnalaganna frá 1925 var að mestu útrýmt, m.a. með ákvæði sem heimilaði að ættarnöfn gengju í kvenlegg.
Þá fólu nýju lögin í sér skýrar reglur um ýmis atriði, svo sem:
1. Hvernig að nafngjöf skyldi standa og hver frestur til hennar væri.
2. Þau skilyrði sem eiginnöfn og kenninöfn skyldu fullnægja.
3. Skráningu og notkun nafna.
4. Nafnbreytingar.
5. Nafnrétt erlendra manna sem gerast íslenskir ríkisborgarar, svo og þeirra sem hafa erlent ríkisfang en eru búsettir hér á landi.
Þótt framför væri að mannanafnalögunum frá 1991 sættu þau brátt nokkurri gagnrýni almennings. Gagnrýnin beindist einkum að ákvæði 2. gr. laganna sem þótti of ströng, en hún fól í sér að öll eiginnöfn af erlendum uppruna urðu óheimil nema þau hefðu unnið sér hefð í íslensku máli, hvort sem þau voru löguð að almennum reglum íslensks máls og hérlendum ritvenjum eða ekki. Auk þess skorti í greinina heimild til að gefa millinöfn, þótt sá siður hefði náð nokkurri útbreiðslu og fengið að þróast að mestu afskiptalaust um alllangt skeið. Auðsætt var af þeirri gagnrýni sem beindist að þessum og fleiri ákvæðum laganna að þau samræmdust ekki réttlætiskennd almennings.
Árið 1993 skipaði dómsmálaráðherra því nefnd sem falið var að endurskoða mannanafna
Mannanafnalögin frá 1996 veita meira frelsi í nafngiftum en verið hafði, einkum með því að heimila aðlöguð erlend eiginnöfn, jafnvel þótt þau styðjist ekki við hefð í íslensku máli. Enn fremur var réttur Íslendinga af erlendum uppruna rýmkaður verulega. Þá heimila lögin millinöfn í fyrsta sinn í sögu íslenskrar mannanafnalöggjafar og aukna fjölbreytni í notkun kenninafna.
2. EFTIRLITSNEFND MED FRAMKVÆMD MANNANAFNALAGA
„Dómsmálaráðherra skal, er lög þessi hafa tekið gildi, skipa þriggja manna nefnd er fylgist með framkvæmd laganna. Einn nefndarmaður skal skipaður eftir tilnefningu menntamálaráðuneytis. Nefndin skal skila greinargerð til ráðherra fyrir 15. september 1997 og tillögum um breytingar á lögunum eftir því sem nefndin telur nauðsynlegt, m.a. í ljósi þeirrar reynslu sem þá hefur fengist af lögunum. Nefndin skal leita álits Hagstofu Íslands.“
Í samræmi við ákvæðið skipaði dómsmálaráðherra nefnd hinn 3. desember 1996. Í nefndina voru skipuð: Dögg Pálsdóttir hrl., formaður, dr. Halldór Ármann Sigurðsson, prófessor og for
Fyrsti fundur nefndarinnar var haldinn 18. febrúar 1997. Nefndin hefur fundað reglulega síðan og haldið alls 10 fundi. Á fundi nefndarinnar hafa komið Drífa Pálsdóttir, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneyti, Skúli Guðmundsson, skrifstofustjóri Hagstofu Íslands, Þjóðskrár, og Ari Páll Kristinsson, forstöðumaður Íslenskrar málstöðvar.
Samkvæmt ákvæði III til bráðabirgða er nefndinni gert að skila greinargerð til ráðherra fyrir 15. september 1997 ásamt tillögum um breytingar á lögunum eftir því sem nefndin telur nauðsynlegt, m.a. í ljósi þeirrar reynslu sem þá hefur fengist af lögunum. Nefndin taldi strax að liðlega hálfs árs reynsla af framkvæmd hinna nýju laga væri of stutt til þess að unnt væri að byggja á henni skynsamlegar lagabreytingartillögur. Í samráði við dómsmálaráðherra var því ákveðið að nefndin skilaði honum á tilsettum tíma þeirri áfangaskýrslu sem hér birtist um framkvæmd laganna. Lokaskýrsla nefndarinnar bíður þess að lengri reynsla komist á framkvæmdina.
3. KYNNING MANNANAFNALAGANNA FRÁ 1996
Í desember 1996 gáfu dóms- og kirkjumálaráðuneytið og mannanafnanefnd út bækling sem nefnist Meginreglur um mannanöfn samkvæmt lögum um mannanöfn, nr. 45/1996. Bækl
Eins og vikið verður að hér á eftir skal mannanafnanefnd gefa út mannanafnaskrá, kynna hana og gera aðgengilega almenningi og senda öllum sóknarprestum og forstöðumönnum skráðra trúfélaga. Ný mannanafnaskrá samkvæmt mannanafnalögunum frá 1996 var gefin út í janúar 1997. Skráin var send öllum prestum og forstöðumönnum skráðra trúfélaga.
Á sl. vori hafði biskupsstofa frumkvæði að því að kynna mannanafnalögin fyrir prestum landsins á sérstökum fundum. Samráð hefur verið haft við dóms- og kirkjumálaráðuneytið um kynninguna. Í vor voru haldnir kynningarfundir um þetta efni í 11 af 16 prófastsdæmum landsins. Á næstu vikum mun þessum kynningarfundum fram haldið í þeim fimm prófasts
4. REYNSLA AF FRAMKVÆMD MANNANAFNALAGANNA
Á framkvæmd mannanafnalaga reynir annars vegar við nafngjöf og hins vegar þegar sjálf
Framkvæmd laganna vegna nafngjafar hvílir annars vegar á prestum og forstöðumönnum skráðra trúfélaga og hins vegar á Hagstofu Íslands, Þjóðskrá. Auk þess þarf mannanafnanefnd að koma að máli ef álita- og ágreiningsmál rísa vegna nafngjafarinnar.
Hagstofu Íslands, Þjóðskrá, tekur þannig við tilkynningum um nafngjöf og gætir þess að barni sé gefið nafn innan sex mánaða frá fæðingu þess, sbr. 2. og 3. gr. laganna og 25. gr. þeirra. Berist tilkynning um eiginnafn eða millinafn sem ekki er á mannanafnaskrá skal Hagstofan vísa málinu til mannanafnanefndar.
Framkvæmd laganna vegna óska sjálfráða einstaklinga eða forsjármanna ósjálfráða einstaklinga um breytingar á nafni hvílir annars vegar á dómsmálaráðuneyti og hins vegar á Hagstofu Íslands, Þjóðskrá. Í þessum tilvikum getur og þurft atbeina mannanafnanefndar ef álita- og ágreiningsmál rísa.
Eins og síðar verður vikið að öðlast þær breytingar sem lögin heimila ekki gildi fyrr en þær eru færðar í þjóðskrá. Hagstofa Íslands, Þjóðskrá, útbjó viðamikið skráningarkerfi vegna breytinga sem gerðar eru á mannanöfnum eftir gildistöku mannanafnalaganna 1991. Kerfinu var síðan breytt með tilliti til þeirra breytinga sem leiddi af mannanafnalögunum frá 1996. Skráningarkerfið var kynnt fyrir nefndinni fljótlega eftir að hún tók til starfa.
Vegna áfangaskýrslu þessarar hefur eftirlitsnefndin fengið upplýsingar úr kerfinu um fyrstu sex mánuði ársins. Upplýsingar þessar koma fram í töflum 1–7 hér á eftir. Skráningarkerfið gefur tækifæri til að athuga hvernig ákvæðum mannanafnalaganna er beitt og er sérstök ástæða til að benda á vönduð vinnubrögð Hagstofu Íslands, Þjóðskrár, að þessu leyti.
A. Hlutverk presta og forstöðumanna skráðra trúfélaga.
Algengast er hér á landi að gefa nafn með skírn í þjóðkirkju. Frá gildistöku laganna til 30. júní 1997 voru 2.139 nafngiftir skráðar í þjóðskrá. Tafla 1 sýnir fyrirkomulag þeirra.
TAFLA 1: Fyrirkomulag nafngjafar Lagaákvæði Fjöldi barna
Skírn í þjóðkirkju 2. mgr. 2. gr. 1.858 (87%)
Skírn eða nafngjöf í skráðu trúfélagi (þar á meðal Fríkirkjum) 2. mgr. 2. gr. 105 (5%)
Nafngjöf tilkynnt Hagstofu 2. mgr. 2. gr. 176 (8%)
Samtals 2.139
Heimild: Hagstofa Íslands, Þjóðskrá.
Í 3. gr. laganna er fjallað um hlutverk presta og forstöðumanna skráðra trúfélaga vegna nafngjafar. Um leið og skírnar eða nafngjafar er óskað hjá presti eða forstöðumanni skráðs trúfélags skal skýra honum frá því nafni eða nöfnum sem barnið á að hljóta. Sé eiginnafnið eða millinafnið ekki á mannanafnaskrá skal prestur eða forstöðumaður trúfélags hvorki samþykkja það að svo stöddu né gefa það við skírn eða nafngjöf heldur bera málið undir mannanafna
Þrátt fyrir þessi skýlausu lagafyrirmæli hefur það gerst 17 sinnum á fyrstu átta mánuðum ársins að prestar gefa nöfn sem ekki eru á mannanafnaskrá og tilkynna nafngjöfina síðan til Hagstofu Íslands, Þjóðskrár. Hagstofan vísar þessum málum til mannanafnanefndar, eins og lög gera ráð fyrir, því henni er óheimilt að skrá nöfn sem ekki eru á mannanafnaskrá. Grunur leikur á að fjöldi mála af þessu tagi sé nokkuð fleiri því þess munu dæmi að prestar hafi gefið nöfn sem ekki voru á mannanafnaskránni en dregið að tilkynna nafngjöf uns mannanafnanefnd hafði afgreitt málið.
Þótt fjöldi þessara mála sé ekki mikill, eða innan við 1% tilvika, þá sýnir hann engu að síður að allstór hópur presta er tilbúinn til að brjóta skýr ákvæði 1. mgr. 3. gr. laganna. Skv. 2. mgr. 25. gr. varða brot gegn lögunum sektum nema þyngri viðurlög liggi við eftir öðrum lögum.
Eins og áður hefur komið fram heimiluðu mannanafnalögin frá 1996 í fyrsta sinn notkun millinafna hér á landi. Það því áhugavert að athuga hversu oft millinafn hefur verið gefið við nafngjöf eftir gildistöku laganna. Tafla 2 sýnir þetta.
TAFLA 2: Millinafn við nafngjöf Lagaákvæði Fjöldi
Millinafn sem barn fær er á mannanafnaskrá 2. mgr. 6. gr. 2
Eiginnafn foreldris í eignarfalli tekið upp sem millinafn barns 2. mgr. 6. gr. 1
Millinafn sem víkur frá ákvæðum 2. mgr. 6. gr. sótt til náins skyldmennis. 3. mgr. 6. gr. 6
Ættarnafn sem barn ber í þjóðskrá gert að millinafni 2. mgr. 7. gr. 1
Ættarnafn sem barn hefur rétt til tekið upp sem millinafn 3. mgr. 7. gr. 2
Ættarnafn sem náið skyldmenni hefur borið (oftast sem eiginnafn eða millinafn)
gert að millinafni 4. mgr. 7. gr. 19
Samtals 31
Heimild: Hagstofa Íslands, Þjóðskrá.
Það sem hér vekur einkum athygli er tvennt: Sókn í að gefa millinafn við nafngjöf er mjög lítil og sókn í ný millinöfn er nánast engin, þ.e. langflest millinöfn eru ættarnöfn sem eru gefin á grundvelli heimildarákvæða 7. gr. laganna. Af 2.139 nafngiftum var nýfæddu barni í 31 skipti (1,45%) einnig gefið millinafn. Í 61% þeirra tilfella var um það að ræða að ættarnafn sem náið skyldmenni hefur borið sem eiginnafn eða millinafn var gert að millinafni (sbr. 4. mgr. 7. gr.).
B. Hlutverk dómsmálaráðuneytis.
1. Að breyta eiginnafni og/eða millinafni, þar með talið að taka nafn eða nöfn til viðbótar því eða þeim sem einstaklingur ber eða fella niður nafn eða nöfn sem hann ber ef telja verður að ástæður mæli með því, sbr. 13. gr. laganna.
2. Að kenna feðrað barn til stjúpforeldris, sbr. 3. mgr. 14. gr. laganna.
3. Að kenna fósturbarn til fósturforeldris enda sé barnið í varanlegu fóstri hjá því, sbr. 5. mgr. 14. gr. laganna.
4. Að taka upp nýtt kenninafn ef telja verður að gildar ástæður mæli með því, sbr. 16. gr. laganna.
Þá er í V. kafla laganna fjallað um nafnrétt manna af erlendum uppruna. Skv. 4. mgr. 11. gr. er þeim sem fyrir gildistöku laganna fengu íslenskt ríkisfang með nafnbreytingarskilyrðum heimilt með leyfi dómsmálaráðherra að taka aftur upp þau nöfn sem þeir báru fyrir og/eða fella niður þau nöfn sem þeim var gert að taka sér.
Eins og áður hefur komið fram tekur leyfi dómsmálaráðuneytisins til nafnbreytinga ekki gildi fyrr en við skráningu í þjóðskrá. Töflur 3–6 sýna þær nafnbreytingar sem dómsmálaráðu
C. Hlutverk Hagstofu Íslands, Þjóðskrár.
Í Þjóðskrá skal skrá allar breytingar sem dómsmálaráðherra heimilar samkvæmt manna
Tafla 3 sýnir breytingar sem gerðar hafa verið á eiginnöfnum manna í þjóðskrá fyrstu sex mánuðina eftir gildistöku mannanafnalaganna. Fyrir öllum breytingum af þessu tagi þarf leyfi dómsmálaráðherra.
TAFLA 3: Eiginnafnsbreytingar Lagaákvæði Fjöldi
Eiginnafn tekið upp til viðbótar öðru eiginnafni 1. mgr. 13. gr. 34
Eiginnafn fellt niður 1. mgr. 13. gr. 6
Eiginnafn tekið upp og annað fellt niður 1. mgr. 13. gr. 7
Nafnbreyting við ættleiðingu 3. mgr. 13. gr. 3
Samtals 50
Heimild: Hagstofa Íslands, Þjóðskrá.
Á fyrstu sex mánuðum ársins hafa 50 eiginnafnsbreytingar samkvæmt leyfi dómsmála
Áður hefur verið vikið að þeim nýmælum sem fólust í millinafnaákvæðum mannanafna
TAFLA 4: Millinafnsbreytingar Lagaákvæði Fjöldi
Millinafn tekið upp samkvæmt mannanafnaskrá (dómsmálaráðuneyti) 2. mgr. 6. gr. 4
Millinafn sem víkur frá ákvæðum 2. mgr. 6. gr. sótt til náins skyldmennis
(dómsmálaráðuneyti) 3. mgr. 6. gr. 7
Ættarnafn sem borið er í þjóðskrá gert að millinafni (Hagstofa) 2. mgr. 7. gr. 1
Ættarnafn sem réttur er til gert að millinafni (Hagstofa) 3. mgr. 7. gr. 17
Ættarnafn sem náið skyldmenni hefur borið (oftast sem eiginnafn eða millinafn)
gert að millinafni (Hagstofa) 4. mgr. 7. gr. 114
Ættarnafn maka gert að millinafni (Hagstofa) 5. mgr. 7. gr. 5
Millinafn maka gert að millinafni (Hagstofa) 5. mgr. 7. gr. 2
Samtals 150
Heimild: Hagstofa Íslands, Þjóðskrá.
Fyrstu sex mánuði ársins 1997 voru 150 breytingar á millinöfnum skráðar í þjóðskrá. Í langflestum tilfellum eða 114 (76%) var um það að ræða að ættarnafn sem náið skyldmenni hefur borið var gert að millinafni. Í fæstum þessara tilfella var heimilt að taka ættarnafnið upp sem kenninafn. Telja verður að sá fjöldi breytinga á millinöfnum sem gerður hefur verið á ekki lengri tíma sýni að þörf var fyrir heimild af þessu tagi, þótt reyndar megi gera ráð fyrir að hún hafi verið uppsöfnuð að ákveðnu marki.
Tafla 5 sýnir breytingar í þjóðskrá á nöfnum manna af erlendum uppruna, sbr. heimildir 11. gr. laganna. Leyfi dómsmálaráðherra þarf til allra breytinga af þessu tagi.
TAFLA 5: Nafnbreytingar manna af erlendum uppruna Lagaákvæði Fjöldi
Breyting vegna íslensks ríkisfangs með lögum 1. mgr. 11. gr. 9
Breyting hjá börnum þeirra sem breytt hafa vegna íslensks ríkisfangs með lögum 2. mgr. 11. gr. 1
Breyting vegna nafnbreytingarskilyrða frá 1952 4. mgr. 11. gr. 20
Breyting hjá niðjum þeirra sem breytt hafa vegna nafnbreytingarskilyrða frá 1952 4. mgr. 11. gr. 68
Samtals 98
Heimild: Hagstofa Íslands, Þjóðskrá.
Þessi tafla sýnir að á fyrstu sex mánuðum ársins hafa níu einstaklingar sem fengu íslenskt ríkisfang með lögum og sem ekki þurftu að breyta nafni sínu engu að síður kosið að taka íslenskt nafn. Taflan sýnir enn fremur að á sama tímabili hafa 20 einstaklingar sem áður höfðu fengið íslenskt ríkisfang með þeim skilyrðum að þeir breyttu nafni sínu og tækju upp íslenskt tekið sitt upprunalega nafn að nýju. Þá hafa 68 niðjar einstaklinga sem urðu að gera slíkar breytingar kosið að breyta sínu nafni. Með mannanafnalögunum frá 1996 var niðjum í fyrsta sinn leyft að taka upp erlent ættarnafn fjölskyldu sinnar. 1
Í IV. kafla mannanafnalaga er fjallað um kenninafnsbreytingar. Kenninafnsbreytingar byggjast flestar á tilkynningu einstaklinga til þjóðskrár um það með hvaða hætti þeir hyggjast breyta kenningu til foreldra á grundvelli ákvæða mannanafnalaganna. Slíkar breytingar eru algengastar eins og fram kemur í töflu 6. Kenninöfnum má þó einnig breyta samkvæmt leyfi dómsmálaráðherra. Leyfi ráðherra þarf ef kenna á feðrað barn til stjúpforeldris, fósturbarn í varanlegu fóstri til fósturforeldris eða ættleitt barn til kjörforeldris. Þá getur ráðherra leyft kenninafnsbreytingu ef gildar ástæður eru fyrir hendi að öðru leyti. Tafla 6 sýnir allar þær breytingar á kenninöfnum sem skráðar hafa verið í þjóðskrá fyrstu sex mánuði ársins.
TAFLA 6: Kenninafnsbreytingar Lagaákvæði Fjöldi
Kenning til föður verður til móður (Hagstofa) 2. mgr. 8. gr. 13
Ættarnafn tekið upp í karllegg (Hagstofa) 2. mgr. 8. gr. 45
Ættarnafn tekið upp í kvenlegg (Hagstofa) 2. mgr. 8. gr. 22
Kenning til beggja foreldra, móðir — faðir (Hagstofa) 2. mgr. 8. gr. 11
Kenning til beggja foreldra, faðir —móðir (Hagstofa) 2. mgr. 8. gr. 6
Kenning til annars foreldris að viðbættu ættarnafni (Hagstofa) 2. mgr. 8. gr. 111
Ættarnafn að viðbættri kenningu til annars foreldris (Hagstofa) 2. mgr. 8. gr. 50
Kenninafn dregið af erlendu eiginnafni foreldris, leyfi
mannanafnanefndar (Hagstofa) 4. mgr. 8. gr. 3
Erlendur ríkisborgari kennir sig til föður eða móður maka (Hagstofa) 1. málsl. 12. gr. 7
Erlendur ríkisborgari tekur upp ættarnafn íslensks maka (Hagstofa) 1. málsl. 12. gr. 2
Feðrað barn kennt til stjúpforeldris (dómsmálaráðuneyti) 3. mgr. 14. gr. 3
Fósturbarn í varanlegu fóstri kennt til fósturforeldris (dómsmálaráðuneyti) 5. mgr. 14. gr. 5
Ættleitt barn kennt til kjörforeldris (dómsmálaráðuneyti) 7. mgr. 14. gr. 15
Ættarnafn fellt niður (Hagstofa) 15. gr. 9
Ættarnafn maka fellt niður (Hagstofa) 15. gr. 5
Breyting vegna gildra ástæðna (dómsmálaráðuneyti) 16. gr. 7
Erlendur ríkisborgari tekur upp ættarnafn erlends maka (Hagstofa) 1
Samtals 315
Heimild: Hagstofa Íslands, Þjóðskrá.
Taflan sýnir að á fyrstu sex mánuðum ársins voru breytingar í þjóðskrá vegna kenninafna algengastar, eða 315 breytingar. Það vekur athygli að sókn í tvöfalda kenningu, þ.e. bæði til föður og móður er lítil. Í 11 tilvikum (3,5%) hefur kenningu verið breytt þannig að kennt er til móður og föður og í 6 tilvikum (2%) hefur kenningunni verið breytt í kenningu til föður og móður. Ákvæði sem heimilaði tvöfalda kenningu kom inn í lögin í meðförum Alþingis og þótti jafnréttismál. Athygli vekur einnig að talsvert er um að einstaklingar vilji breyta kenningu þannig að hún sé til annars foreldris að viðbættu ættarnafni eða ættarnafn að viðbættri kenningu til annars foreldris. Þessi fjöldi breytinga af þessu tagi endurspeglar væntanlega vilja þeirra sem heimild hafa til að bera ættarnafn til að bera það áfram en kenna sig jafnframt til annars foreldris síns. Í þessum tilvikum er ýmist að ættarnafn komi á undan kenningu til foreldrisins (50) eða á eftir (111).
Mannanafnalögin heimila Hagstofu Íslands, Þjóðskrá, að breyta ritun nafns í þjóðskrá án þess að um sé að ræða eiginlega nafnbreytingu. Slík breyting á nafnritun skal fara eftir reglum sem Hagstofan setur að höfðu samráði við mannanafnanefnd. Tafla 7 sýnir breytingar sem gerðar eru á nafnritun án þess að um eiginlega nafnbreytingu sé að ræða.
Tafla 7: Aðrar breytingar Lagaákvæði Fjöldi
Nafnritun breytt án nafnbreytingar (Hagstofa) 20. gr. 315
Samtals 315
Heimild: Hagstofa Íslands, Þjóðskrá.
Það vekur athygli hversu algengt það er að einstaklingar óska eftir breytingu á nafnritun sinni. Lætur nærri að Hagstofa Íslands, Þjóðskrá, fái tvær slíkar breytingar til afgreiðslu á hverjum vinnudegi. Algengast er að breyting af þessu tagi eigi rætur að rekja til upphafs þjóðskrár. Ef nöfn voru löng var eingöngu hægt að skrá eitt eiginnafn ásamt kenninafni á gataspjöld sem þá voru notuð. Það þurfti því oft að sleppa eiginnöfnum. Eftir gildistöku mannanafnalaganna 1991 var þess gætt betur en áður að nafnritun í opinberum skjölum, svo sem vegabréfi og ökuskírteini, væri hin sama og í þjóðskrá. Af því hefur leitt að fjölmargir einstaklingar hafa látið breyta nafnritun sinni þannig að skráð séu eiginnafn eða eiginnöfn sem ekki var áður rúm fyrir í eldri skráningarkerfum þjóðskrár.
D. Hlutverk mannanafnanefndar.
Verkefni nefndarinnar eru:
1. Að semja skrá um eiginnöfn og millinöfn sem heimil teljast skv. 5. og 6. gr. laganna, svokallaða mannanafnaskrá. Nefndin skal gefa skrána út, kynna hana og gera hana aðgengilega almenningi. Þá skal nefndin senda skrána til allra sóknarpresta og forstöðu
2. Að vera prestum, forstöðumönnum skráðra trúfélaga, Hagstofunni, dómsmálaráðherra og forsjármönnum barna til ráðuneytis um nafngjafir og skera úr álita- og ágreinings
3. Að skera úr öðrum álita- og ágreiningsmálum sem upp kunna að koma um nafngjafir, nafnritun og fleira þess háttar.
Af þessu má sjá að mannanafnanefnd er úrskurðaraðili í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma um nöfn og annað sem að nöfnum lýtur. Nefndin skal einnig skera úr um hvort nafn sé heimilt þegar svo stendur á að óskað er eftir nafni sem ekki er á mannanafnaskrá eða þegar nafn hefur verið gefið sem svo háttar um (sbr. 3. gr.). Enn fremur er óskum um að kenninafn barns sé lagað að erlendu eiginnafni foreldris þess skotið til úrskurðar mannanafnanefndar (sbr. 4. mgr. 8. gr.).
Nefndin skal kveða upp úrskurði sína svo fljótt sem við verður komið og eigi síðar en innan fjögurra vikna frá því að mál berast nefndinni. Skv. 2. mgr. 22. gr. eru úrskurðir mannanafna
Á tímabilinu 1. janúar til 31. ágúst 1997 hefur mannanafnanefnd afgreitt 88 erindi um 92 nöfn og ritmyndir nafna. Afgreiðsla erindanna flokkast eins og tafla 8 sýnir.
TAFLA 8: Yfirlit yfir úrskurði
mannanafnanefndar 1. janúar til 31. ágúst 1997 Samþykkt Hafnað Samtals
Eiginnöfn 65 5 70
Ritmyndir eiginnafna 3 13 16
Millinöfn 2 1 3
Aðlöguð kenninöfn 3 0 3
Samtals 73 19 92
Heimild: Mannanafnanefnd.
Taflan sýnir að af þeim erindum sem mannanafnanefnd hafa borist hefur hún samþykkt 73 (79%) en hafnað 19 (21%). Það eru fyrst og fremst ritmyndir nafna sem er hafnað, einkum ritmyndir sem ekki samræmast almennum ritreglum íslensks máls og fullnægja því ekki 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. laganna. Dæmi: Cathinca og Rosemarie var hafnað en Katinka og Rósmarý samþykkt. Á meðal annarra nafna sem hafnað hefur verið er Lusifer.
Hlutfall synjana var talsvert hærra á gildistíma mannanafnalaganna frá 1991 og má til samanburðar nefna að á þriggja mánaða tímabili árið 1993 sem tölur eru tiltækar um (17. ágúst til 17. nóvember 1993) fjallaði mannanafnanefnd um 55 beiðnir og hafnaði 25 þeirra eða 45%. Raunverulega hefur hlutfall hafnananna þó lækkað enn frekar en þessar tölur gefa til kynna því langflestar beiðnir um millinöfn eru nú afgreiddar af Hagstofu Íslands, Þjóðskrá, eða dómsmálaráðuneyti og venjulega samþykktar í samræmi við heimildarákvæði 3. mgr. 6. gr. og 7. gr., sbr. töflur 2 og 4. Slík mál hækka því hlutfall samþykktra beiðna talsvert.
5. ÁBENDINGAR
Upplýsingar um erindi sem mannanafnanefnd hefur fengið til umfjöllunar og um afgreiðslur þeirra sýna einkum tvennt: Málum hjá nefndinni hefur fækkað og nefndin samþykkir fleiri erindi nú en áður.
Upplýsingar frá Hagstofu Íslands, Þjóðskrá, sýna hvaða breytingar eru helst gerðar á nöfnum manna með stoð í ákvæðum mannanafnalaganna. Breytingar þessar eru af tvennum toga, þær sem gerðar eru með sérstöku leyfi dómsmálaráðherra og þær sem einstaklingar geta tilkynnt beint á grundvelli laganna til Hagstofu Íslands, Þjóðskrár.
Eftirlitsnefndin hefur hér að framan rakið þær upplýsingar sem hún hefur getað aflað sér um reynsluna af framkvæmd mannanafnalaganna frá 1996. Áður hefur verið á það minnst að nefndin telur varhugavert að draga víðtækar ályktanir af svo stuttri framkvæmd laganna.
Eftirlitsnefnd með framkvæmd mannanafnalaga telur að í flestu hafi vel tekist til um framkvæmdina á þeim stutta tíma sem þau hafa gilt og að í öllum aðalatriðum sé hún í réttum farvegi. Nefndin vill þó vekja athygli á eftirtöldum atriðum.
1. Kynning mannanafnalaganna frá 1996 byrjaði nokkuð seint og hefði mátt vera öflugri. Kynning beindist einkum að prestum og forstöðumönnum trúfélaga. Kynning til almennings, sem sérstaklega er fjallað um í ákvæði II til bráðabirgða, virðist hafa verið óveruleg. Bæta þarf úr og kynna almenningi mannanafnalögin.
2. Þrátt fyrir sérstaka kynningu mannanafnalaganna fyrir prestum gera þeir enn mistök. Auk þess virðist hlýðni þeirra við lögin á stundum ekki nægileg því vitað er um 17 tilvik fyrstu átta mánuði ársins þar sem nafn sem ekki er á mannanafnaskrá hefur verið gefið. Það þýðir í raun að u.þ.b. 10% presta í landinu hafa brotið ákvæði mannanafnalaganna á þessum tíma. Kynningu meðal presta þarf því nauðsynlega að auka. Enn fremur þarf dómsmálaráðuneytið að grípa til aðgerða gagnvart þessum prestum og a.m.k. áminna þá.
3. Reglur samkvæmt ákvæði I til bráðabirgða með mannanafnalögunum hafa ekki verið settar. Nauðsynlegt er að slíkar reglur verði settar hið fyrsta eins og löggjafinn ætlaðist til.
4. Reglur skv. 20. gr. mannanafnalaganna um heimild Hagstofu Íslands, Þjóðskrár, til að breyta ritun nafns í þjóðskrá án þess að um eiginlega nafnbreytingu sé að ræða hafa ekki verið settar. Full ástæða sýnist til að huga að setningu þessara reglna.
6. LOKAORÐ
Eftirlitsnefndin hefur rætt ættarnöfn sérstaklega og stöðu þeirra í hinu íslenska manna
Þótt engar lagabreytingartillögur séu gerðar í áfangaskýrslu þessari hefur nefndin fengið ábendingar um að tiltekin ákvæði laganna kunni að fela í sér brot á jafnræðisreglu. Sömuleiðis hafa nefndinni borist ábendingar um ýmislegt sem betur mætti fara í mannanafnalöggjöfinni.
Eftirlitsnefnd með framkvæmd laga um mannanöfn, nr. 45/1996, mun á komandi mánuðum athuga ábendingar sem fram hafa komið um breytingar á mannanafnalögum, íhuga sérstaklega þörf á breytingum vegna ættarnafna og í ljósi reynslunnar af lengri framkvæmd laganna meta þörf fyrir aðrar breytingar á þeim.
- Neðanmálsgrein: 1
- 1 Sambærilegt ákvæði hafði um nokkurn tíma verið sett á hverju ári í sérlög um ríkisborgararétt.
- Neðanmálsgrein: 2
- 1 Samtala í öllum töflum í þessum kafla sýnir fjölda breytinga sem gerðar hafa verið, ekki fjölda þeirra einstaklinga sem í hlut áttu.
- Neðanmálsgrein: 3
- 1 Þetta á einvörðungu við um niðja þeirra útlendinga sem fengið hafa íslenskan ríkisborgararétt. Réttur annarra útlendinga hér á landi og niðja þeirra til þess að halda ættarnafni sínu var hins vegar óskertur.