Ferill 33. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 33 – 33. mál.


Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um kreditkortafyrirtæki.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Í hvaða löndum OECD tíðkast það að krafist er persónulegrar ábyrgðar þriðja manns fyrir greiðslu í kreditkortaviðskiptum og hver er ástæða þess að krafist er slíkrar ábyrgðar hér á landi?
     2.      Hvaða trygginga er krafist í löndum þar sem ábyrgðar þriðja manns er ekki krafist?
     3.      Hve oft á sl. fimm árum hafa skuldir fallið á ábyrgðarmenn í kreditkortaviðskiptum?


Skriflegt svar óskast.