Ferill 89. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 89 – 89. mál.



Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um markaðssetningu íslenskra landbúnaðarvara erlendis.

Frá Gísla S. Einarssyni.



     1.      Hefur Framleiðnisjóður landbúnaðarins veitt styrki til markaðssetningar íslenskra landbúnaðarvara erlendis sl. sjö ár? Ef svo er, hverjir eru þeir? Svar óskast sundurliðað eftir búgreinum.
     2.      Hver er faglegur rökstuðningur Framleiðnisjóðs við styrkveitingar og synjanir styrkja úr sjóðnum?


Skriflegt svar óskast.