Ferill 186. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 188 – 186. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um skipan nefndar til að auka aga í skólum landsins.
Flm.: Hjálmar Árnason, Guðni Ágústsson,
Ólafur Örn Haraldsson.
Í nefndinni sitji fulltrúar menntamálaráðherra, Kennaraháskóla Íslands, Háskóla Íslands, Landssamtakanna heimili og skóli, Íþróttasambands Íslands, Ungmennafélags Íslands, sam
Greinargerð.
Oft er því haldið fram hérlendis að unga fólkið og jafnvel þjóðin öll sé óöguð. Þetta heyrist gjarna í kjölfar atburða eins og óláta í miðborginni, vandamála í samskiptum kynslóðanna, niðurstaðna af samræmdum prófum og samanburðarrannsóknum við aðrar þjóðir, biðraða
Færa má fyrir því rök að skólar og aðrar stofnanir hafi tekið við hluta af uppeldishlutverki heimila og því til viðbótar verji mörg börn drjúgum hluta tómstunda sinna undir takmörkuðu eftirliti á götum úti. Á það hefur verið bent að samband og samstarf heimila, skóla, íþróttafé
Árangur af skólastarfi ræðst af mörgum þáttum. Vert er að benda á að skólastarf á sér ekki einungis stað innan veggja skólans heldur skipta heimilin þar og miklu máli. Ástæða er til að velta fyrir sér hvort langur vinnutími foreldra á Íslandi kunni ekki að leiða til tiltölulega stuttra samvista foreldra og barna með þeim afleiðingum að börn verði rótlaus og óöguð. Þannig má hugsanlega tengja vaxandi ofbeldi, fíkniefnanotkun og skemmdarverk meðal barna og unglinga við það rótleysi sem margir telja að ríki á heimilum. Kann þar margt að valda, svo sem langur vinnutími og vaxandi ofbeldi í fjölmiðlum og kvikmyndum. Draga má í efa að eðlileg samskipti barna og foreldra séu nægileg. Börnum er mikilvægt að alast upp við agað umhverfi en finna jafnframt til kærleika og öryggis. Velta má upp þeirri spurningu hvort það öryggi og agi sé til staðar í þjóðfélaginu almennt og ef ekki, hvaða félagslegar afleiðingar það hefur.
Þá er rétt að fram fari athugun á því hvort kennsluhættir og skipulag skólastarfs hafi náð að þróast eðlilega. Í því sambandi er ástæða til að skoða áhrif launakjara kennara á starfs
Þá má spyrja hvort sú stefna, sem kölluð hefur verið blöndun í bekki, hafi skilað því sem til var ætlast. Margir hafa haldið því fram að hugmyndafræðin hafi ekki náð fram að ganga af ýmsum ástæðum, m.a. vegna þess að stoðaðgerðir flestar hafi ekki fylgt með og afleiðingin sé sú sem kölluð hefur verið „útþynning“ krafna og námsárangurs. Einnig hefur því verið velt upp hvort kröfur til nemenda séu almennt nægar í námi, umgengni o.s.frv. Inn í umræðuna hefur komið gagnrýni á minnkandi utanbókarlærdóm nemenda án þess að fylgt hafi hver áhrif þess séu ef rétt reynist.
Í samanburði við helstu samkeppnislönd hefur komið í ljós að íslensk skólabörn sækja ár
Heyra má þær raddir frá aðilum vinnumarkaðarins að nokkuð skorti á sjálfsaga nemenda þegar þeir koma úr skóla til starfa á almennum vinnumarkaði. Nefndinni er ætlað að fjalla um hvað hæft er í því og birta tillögur til úrbóta, reynist þess þörf.
Drjúgur hópur ungmenna stundar íþróttir á vegum íþróttafélaga og ýmsa aðra tómstunda
Fleiri atriði mætti nefna en ljóst má vera af því sem hér hefur verið talið upp að verkefni nefndar á borð við þá sem hér er lagt til að verði skipuð eru ærin. Meginatriðið er að málið verði skoðað í sem víðustu samhengi og kynntar verði tillögur sem taka á þeim vanda sem við blasir. Ísland á í aukinni samkeppni við þjóðir heims á flestum sviðum. Forsenda þess að þjóðin standist hana og geti haldið hér uppi traustu velferðarþjóðfélagi hlýtur að vera sú að einstaklingar alist upp við þau skilyrði að þeir geti þroskað með sér aga á öllum sviðum.
Þingsályktunartillagan gerir ráð fyrir því að menntamálaráðherra skipi vinnuhóp sem skil