Ferill 62. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 201 – 62. mál.
Svar
iðnaðarráðherra við fyrirspurn Hjörleifs Guttormssonar um olíuhreinsunarstöð.
1. Með hvaða hætti hefur að undanförnu af hálfu íslenskra stjórnvalda verið fjallað um byggingu stórrar olíuhreinsunarstöðvar hérlendis?
Hugmyndin á sér rætur í þátttöku Íslands í Barentsráðinu sem er stofnað til að efla sam
Fjárfestingarskrifstofa Íslands hefur síðan gert ráðstafanir til að unnin verði af sérfróðum mönnum forhagkvæmniathugun varðandi byggingu olíuhreinsunarstöðvar, hefur kynnt þeim fjárfestingarumhverfi hér á landi og haft forgöngu um öflun nauðsynlegra upplýsinga.
2. Hvaða erlendir aðilar koma að þessu máli og hverjar eru tæknilegar og viðskiptalegar forsendur þess?
Ekki er unnt á þessu stigi að greina frá erlendum samstarfsaðilum fjárfestingarskrifstof
3. Liggur fyrir úttekt á áhættuþáttum að því er snertir mengunarhættu frá rekstri og sjóflutningum?
Engar úttektir liggja fyrir á þessu stigi um neina þætti málsins en fram hefur komið að andstætt eldri gerðum olíuhreinsunarstöðva megi gera þær sem nú eru reistar svo úr garði að rekstrinum fylgi lítil mengunarhætta. Dæmi séu þess að hreinsunarstöðvar standi í borgum og við baðstrendur. Lögð hefur verið áhersla á það að hér þurfi að uppfylla ströngustu kröfur í þessum efnum.
4. Hvað liggur fyrir um hugsanlega staðsetningu olíuhreinsunarstöðvar hérlendis?
Frumathugun tekur mið af því að verksmiðjan verði á Austurlandi.
5. Hvert er ráðgert framhald málsins?
Miðað er við að forhagkvæmniathugun verði skilað í lok ársins. Niðurstöðu hennar er ætl