Ferill 256. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 373 – 256. mál.
                        


Breytingartillaga



við till. til þál. um Goethe-stofnunina í Reykjavík.

Frá utanríkismálanefnd.



    Tillögugreinin orðist svo:
    Alþingi ályktar, með hliðsjón af hinum góðu samskiptum Íslands og Þýskalands, að lýsa yfir stuðningi við þau tilmæli ríkisstjórnarinnar til þýskra stjórnvalda að tryggja að Goethe-stofnunin í Reykjavík verði starfrækt áfram.
    Jafnframt hvetur Alþingi ríkisstjórnina til að stuðla að því að af Íslands hálfu verði aukin kynning á íslenskri menningu í Þýskalandi.