Ferill 323. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 584 – 323. mál.
Breytingartillögur
við frv. til l. um ráðstafanir í ríkisfjármálum á árinu 1998.
Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (VE, EOK, GMS, SP, VS, PHB).
1. Á eftir 4. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Lokamálsliður 48. gr. laganna fellur brott.
2. Á eftir 5. gr., er verði 6. gr., komi ný grein, svohljóðandi:
Í stað „1997“ í ákvæði til bráðabirgða IV með lögunum komi: 1998.