Ferill 576. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 981 – 576. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um tengsl umferðarslysa og neyslu ávana- og fíkniefna.
Frá Hjálmari Árnasyni.
1. Hversu oft hafa ökumenn, sem lent hafa í umferðaróhöppum sl. fimm ár, mælst með of hátt áfengismagn í blóði eða fundist í blóði þeirra merki um fíkniefnaneyslu?
2. Hversu mörg eru þessi tilvik sem hlutfall af heildarfjölda umferðaróhappa, sundurliðað eftir árum?
Skriflegt svar óskast.