Ferill 604. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1058 – 604. mál.
Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á l. nr. 38 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
Frá meiri hluta sjávarútvegsnefndar (ÁRÁ, EOK, HjÁ, VS, VE, GHall).
1. Við 1. gr.
a. 5. efnismgr. orðist svo:
Veiði fiskiskip minna en 50% af samanlögðu aflamarki sínu í þorskígildum talið tvö fiskveiðiár í röð fellur veiðileyfi þess og aflahlutdeild niður og skal aflahlutdeild annarra skipa í viðkomandi tegundum hækka sem því nemur. Skal við mat á þessu hlut
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Á hverju fiskveiðiári er einungis heimilt að flytja af fiskiskipi aflamark, umfram afla
2. Við bætist tvö ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
a. (I.)
Sjávarútvegsráðherra skal fyrir lok fiskveiðiársins 1998/1999 láta kanna hvaða áhrif lögin hafi haft á íslenskan sjávarútveg, sérstaklega stöðu og möguleika einstaklingsút
b. (II.)
Ákvæði 1. tölul. 2. efnismgr. 1. gr. laga þessara gilda einnig um flutning aflamarks skipa innan sömu útgerðar ef skip hafa verið tekin á kaupleigu eða leigu og þeir samningar verið gerðir fyrir gildistöku laga þessara.