Ferill 713. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1384 – 713. mál.
Skýrsla
dómsmálaráðherra um meðferð heimilisofbeldismála í dómskerfinu.
(Lögð fyrir Alþingi á 122. löggjafarþingi 1997–98.)
I. INNGANGUR
Hinn 25. apríl 1997 ritaði dómsmálaráðuneytið stjórn Dómarafélags Íslands bréf þar sem kynnt var sú fyrirætlan dómsmálaráðherra að niðurstöður skýrslu nefndar sem skipuð var til að undirbúa og hafa umsjón með rannsóknum á ástæðum, afleiðingum og umfangi heimilis
Í niðurstöðukafla nefndar þeirrar sem að framan er getið segir:
„Rannsóknir á tíðni heimilisofbeldis hafa verið gerðar í ýmsum löndum en vegna mismunandi rannsóknaraðferða er erfitt að bera saman ólíkar rannsóknir milli landa. Þrátt fyrir það sýna niðurstöður þessarar rannsóknar að heimilisofbeldi er sjaldgæfara en í ýmsum öðrum löndum, t.a.m í Bandaríkjunum. Umfang þess virðist vera svipað og í Danmörku en rannsóknir á tíðni heimilisofbeldis hafa ekki verið framkvæmdar annars staðar á Norðurlöndunum. Rannsóknin sem framkvæmd var hér á landi hefur ákveðna sérstöðu þar sem hún náði til allrar þjóðarinnar en flestar erlendar rannsóknir og sérstaklega bandarískar eru oft gerðar meðal tiltekinna þjóðfélagshópa (Wilt og Olsen, 1996). Út frá slíkum rannsóknum er ekki hægt að alhæfa um niðurstöður og enn síður hægt að heimfæra þær á milli landa.
Niðurstöður rannsóknarinnar staðfesta eldri rannsóknir sem hafa sýnt að ofbeldi gegn konum er á margan hátt ólíkt ofbeldi gegn körlum. Ofbeldi gegn körlum er oftast framið af ókunnugum en ofbeldi gegn konum af einhverjum sem þær þekkja. Niðurstöðurnar sýna að þegar um er að ræða ofbeldi milli hjóna eða sambýlisfólks er ofbeldið oft endurtekið.
Þegar spurt var um það ofbeldi sem viðkomandi hafi verið beittur síðastliðna 12 mánuði má sjá hversu umfangsmikið vandamálið er á hverjum tíma. Ef tölurnar eru umreiknaðar og þeim beitt á fjölda kvenna á aldrinum 18 til 65 ára hafa tæplega 350 konur verið beittar ofbeldi einu sinni á síðasta ári af völdum núverandi eða fyrrverandi eiginmanns eða sambýlismanns. Enn stærri hópur kvenna, um 750 konur, hafa mátt þola ofbeldi af völdum eiginmanns oftar en einu sinni og bendir það til þess að þær búi við ofbeldi. Könnunin svarar því ekki hversu oft var um einstakan ofbeldisverknað að ræða eða hvort ofbeldið var upphafið að lengra ofbeldisferli. Samtals hafa á bilinu 1000 til 1100 konur mátt þola ofbeldi af hendi núverandi eða fyrrverandi eiginmanns eða sambýlismanns á síðasta ári. Hins vegar hafa um 650 karlar verið beittir ofbeldi af núverandi eða fyrrverandi maka. Af þessu má sjá að heimilisofbeldi er til staðar á heimilum hér á landi og í sumum tilfellum á það sér stað með reglulegu millibili.
[...]
Eins og eldri rannsóknir sýna niðurstöður þessarar rannsóknar að engar einfaldar skýringar eru á heimilisofbeldi. Fjárhags- og félagslegt öryggisleysi, barnsburðarhlutverkið og yfirráð eru þættir sem skýra að einhverju leyti ofbeldi gagnvart konum. Sýnt er þó að skýringar ofbeldis er ekki að finna í einstaklingsbundnum einkennum eða félagslegum aðstæðum þeirra kvenna sem hafa verið beittar ofbeldi. Ofbeldi gegn konum stafar ekki af einhverri einni orsök heldur verður það einungis skýrt út frá mörgum mismunandi orsakaþáttum. Hafa verður í huga að engin ein skýring er algild. Niðurstöðurnar sýna ekki að einstakir hópar í þjóðfélaginu verði frekar fyrir ofbeldi en aðrir. Niðurstöðurnar sýna ótvírætt að afleiðingar ofbeldis eru margþættar og oftast finna þær konur er fyrir ofbeldinu verða fyrir margs konar andlegri vanlíðan. Í rannsókninni eru greindar þrenns konar meginafleiðingar en það eru skammtímaafleiðingar, langtímaafleiðingar og öryggisleysi. Það kom á óvart að flestar konurnar höfðu leitað sér einhverrar aðstoðar. Stuðningskerfið sem konur njóta er einkum frá eigin fjölskyldu sem gæti skýrt hversu margir segjast þekkja konur sem hafa verið beittar ofbeldi.
Ofbeldi er alvarlegt vandamál eins og niðurstöður rannsóknarinnar staðfesta. Leggja verður áherslu á að forvarnir og fræðsla nái til allra þar sem ein meginniðurstaða rannsóknarinnar er sú að ofbeldi fyrirfinnst í öllum hópum. Enn fremur vegna þess að þær konur sem hafa verið beittar ofbeldi leita til fjölskyldu sinnar og sinna nánustu um ráð og stuðning. Forvarnir og fræðsla verða ekki markviss nema byggt sé á þekkingu og því var talið nauðsynlegt að gera rannsókn á heimilisofbeldi á Íslandi. Með því að afla aukinnar þekkingar á ofbeldi á heimilum með íslenskum rannsóknum eins og þeirri sem hér hefur verið greint frá er þess vænst að hægt sé að bæta forsendur fyrir aðgerðum, hafa áhrif á viðhorf og umræðu í þjóðfélaginu.“
Með bréfi dags. 2. desember 1997 heimilaði dóms- og kirkjumálaráðuneytið nefndinni að ráða Unu Björk Ómarsdóttur lögfræðing til þess að vera ritara nefndarinnar og hefur hún starfað með nefndinni frá því í desemberbyrjun.
Nefndin hefur afmarkað verksvið sitt þannig að heimilisofbeldi er skilgreint með sama hætti og gert er í skýrslu dómsmálaráðherra um orsakir, umfang og afleiðingar heimilis
II. GILDANDI LAGAÁKVÆÐI
Hér á eftir verða rakin þau ákvæði refsilaga og réttarfarslaga sem í gildi eru nú og geta tekið til heimilisofbeldismála.
A. Ákvæði í almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum.
191. gr.
Varðhaldi eða sektum skal sá sæta, sem af þverúð vanrækir framfærsluskyldu sína eða skyldu til meðlagsgreiðslu gagnvart nokkrum framangreindra aðilja, sem af því geta orðið bjargþrota.
193. gr.
194. gr.
195. gr.
196. gr.
205. gr.
211. gr.
217. gr.
Málssókn er opinber út af broti samkvæmt 1. mgr., og skal mál eigi höfðað nema almenn
218. gr.
Nú hlýst stórfellt líkams- eða heilsutjón af árás eða brot er sérstaklega hættulegt vegna þeirrar aðferðar, þ. á m. tækja, sem notuð eru, svo og þegar sá, er sætir líkamsárás, hlýtur bana af atlögu, og varðar brot þá fangelsi allt að 16 árum.
218. gr. a.
Samþykki til líkamsárásar veldur því að refsingu, sem ella væri unnið til, má lækka. Nú varðar verknaður við 217. gr., og verður þá ekki refsað, þegar samþykki liggur fyrir.
Nú er líkamsárás unnin í áflogum eða átökum milli þess, sem henni veldur, og þess, sem misgert er við, og er þá heimilt að lækka refsingu eða jafnvel láta hana falla niður, þegar verknaður á undir 217. gr. Sama er, ef sá, sem verður fyrir tjóni, á upptök að átökum með árás, ertingum eða líku.
225. gr.
226. gr.
Hafi frelsissvipting verið framin í ávinningsskyni eða verið langvarandi, svo og ef maður hefur verið settur í heimildarleysi á geðveikrahæli, fluttur burt í önnur lönd eða fenginn mönn
231. gr.
232. gr.
Hver, sem opinberlega leggur annan mann í einelti með vísvitandi ósönnum skýrslum, sem lagaðar eru til þess að lækka hann í áliti almennings, sæti sektum eða varðhaldi allt að 1 ári.
233. gr.
B. Ákvæði laga nr. 19/1991, um meðferð opinberra mála, með síðari breytingum.
112. gr.
113. gr.
2. Einnig má falla frá saksókn þegar svo stendur á sem hér segir:
a. ef brot er mjög smávægilegt,
b. ef sakborningur virðist vera ósakhæfur og ekki er nauðsynlegt að gera kröfu um að hann verði beittur öryggisráðstöfunum samkvæmt fyrirmælum almennra hegningarlaga,
c. ef brot hefur valdið sakborningi sjálfum óvenjulegum þjáningum og málsókn þykir ekki brýn af almennum refsivörsluástæðum,
d. ef sækja á mann til sakar í einu máli út af fleiri brotum er heimilt að falla frá saksókn út af brotum sem ætla má að skipti engu eða óverulegu máli við ákvörðun viðurlaga; enn fremur má falla frá saksókn ef svo stendur á sem í 78. gr. almennra hegningarlaga segir og ætla verður að ekki yrði um frekari refsingu að ræða þótt sakfellt yrði,
e. ef nauðung eða fjárkúgun hefur verið framin með hótun um kæru fyrir refsivert athæfi er heimilt að falla frá saksókn fyrir það brot ef það er ekki því stórfelldara,
f. ef sérstaklega stendur á og telja verður að almannahagsmunir krefjist ekki málshöfðunar.
3. Ef ríkissaksóknari telur ástæðu til að falla frá saksókn, en telur vafa leika á heimild sinni til þess getur hann óskað eftir að dómsmálaráðherra geri tillögu til forseta Íslands um niðurfall saksóknar samkvæmt ákvæðum 29. gr. stjórnarskrár
4. Í málum þar sem lögreglustjóri fer með ákæruvald getur hann fallið frá saksókn. Ef hann telur ástæðu til að falla frá saksókn skv. 2. mgr. en vafa leika á heimild til þess skal hann senda ríkissaksóknara málið með tillögum sínum.
114. gr.
2. Sá sem ekki vill una við ákvörðun lögreglustjóra skv. 1. mgr. getur kært hana til ríkissaksóknara innan eins mánaðar frá því að honum var tilkynnt um hana. Skal ríkissaksókn
170. gr.
2. Kröfu, sem höfð er uppi, skal bera undir sakborning og afla gagna um hana eftir þörfum, enda valdi það ekki verulegum töfum á rannsókninni.
171. gr.
172. gr.
2. Ef ákærða er dæmt áfall í máli dæmir dómari um bótakröfu og ákveður bætur eftir almennum reglum.
3. Ef ákærði er sýknaður af háttsemi vegna þess að hann hafi ekki framið hana verður bótakröfu vísað frá dómi. Ef hann er sýknaður af öðrum ástæðum, svo sem vegna sakhæfisskorts, má dæma kröfu ef skilyrðum bótaskyldu er talið fullnægt.
4. Auk bóta fyrir beint tjón og miska, sem leitt hefur af verknaði, skulu tjónþola, ef krafa er gerð um það, dæmdar bætur vegna kostnaðar sem hann hefur haft af því að halda fram kröfu sinni í málinu, svo sem vegna gagnaöflunar um kröfuna og lögmannsaðstoðar.
5. Sá sem krefst bóta samkvæmt ákvæðum þessa kafla fer sjálfur með forræði kröfu sinnar að því leyti að henni verður ekki breytt án samþykkis hans. Dómari skal gefa tjónþola, eða umboðsmanni hans, kost á að tjá sig um kröfuna og skýra hana ef slíkt getur orðið án verulegra tafa eða óhagræðis í máli. Telji dómari slíks málflutnings þörf um kröfuna, en ekki unnt að láta hann fara fram, skal hann vísa henni frá dómi.
173. gr.
2. Ákærða og þeim sem krefst bóta samkvæmt ákvæðum þessa kafla er hvorum um sig heimilt að áfrýja sérstaklega til Hæstaréttar ákvæði héraðsdóms þar sem bótakrafa hefur verið dæmd að efni til ef dóminum er ekki áfrýjað að öðru leyti, enda fer um það málskot sem um áfrýjun einkamála.
174. gr.
III. HEIMILISOFBELDISMÁL SEM KOMIÐ HAFA TIL MEÐFERÐAR ÁKÆRUVALDS OG DÓMSTÓLA
Nefndin hefur safnað upplýsingum úr málaskrá embættis ríkissaksóknara um þau tilvik sem komið hafa til meðferðar á tímabilinu 1. júlí 1992 til 1. júlí 1997. Er hér um að ræða mál sem fengið hafa meðferð fyrir dómstólum og eru þeir dómar sem gengu á framangreindu tímabili raktir hér á eftir. Ritari nefndarinnar, Una Björk Ómarsdóttir, tók dómana saman og reifaði þá. Þá er í B-lið hér á eftir að finna yfirlit mála sem komu til ríkissaksóknara á framangreindu tímabili og ekki gengu til dóms.
A. Dómareifanir.
Hæstaréttardómar.
Hæstaréttardómur 1992:363 í málinu nr. 460/1991.
Þau M og K voru að skilja eftir 20 ára hjónaband og bar K að M hefði aldrei lagt á hana hendur fyrr. K sagði M hafa farið af landi brott fimmtudeginum áður og ekki verið væntan
M hafði látið þau orð falla að ástæða ferðar hans af landi brott væri að hann ætlaði að gera nokkuð sem hann hefði lengi langað til að gera.
Ákærði neitaði því að hafa ætlað að ráða K bana en viðurkenndi að hafa slegið hana í ennið með kúluhamri og lagt plastpoka yfir andlit hennar. Hann kvaðst hafa viljað hrekkja hana þar sem hún hefði verið leiðinleg við sig undanfarna mánuði. Fyrir lögreglu bar hann að ástæða árásarinnar hafi verið sú að hann hafi ætlað að ræða við hana um skilnaðarmál þeirra. Ákærði sagðist hafa „danglað“ hamrinum laust í enni konu sinnar. Hún taldi höggið ekki hafa verið mjög þungt, enda hlutust minni háttar áverkar af.
Héraðsdómur taldi sannað með játningu ákærða sem studdur var framburði K, læknisvott
Gegn eindreginni neitun ákærða varð að telja ósannað að hann hefði ætlað að svipta eigin
Ákærði hafði ekki áður sætt refsingum sem skiptu máli við úrlausn málsins. Refsing þótti hæfilega ákveðin 18 mánuðir og engar refsilækkunarástæður komu til greina að mati dómsins.
Málinu var skotið til Hæstaréttar að ósk ákærða en jafnframt af hálfu ákæruvaldsins til sakfellingar samkvæmt ákæru og þyngingar refsingar.
Hæstiréttur staðfesti þá niðurstöðu héraðsdóms að sýkna ákærða af broti gegn 211. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, og að ákærði hefði gerst brotlegur við 2. mgr. 218. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981. Refsing þótti hæfilega ákveðin níu mánaða fangelsi. Þegar litið var til allra atvika og þess að mikil röskun hafði orðið á högum ákærða þótti mega fresta fullnustu sex mánaða af refsingunni og sá hluti falla niður að liðnum tveimur árum frá dómsuppkvaðningu, héldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940.
Hæstaréttardómur 1993:890 í málinu nr. 109/1993.
Málinu var skotið til Hæstaréttar að ósk ákærða en einnig af hálfu ákæruvalds til sakfell
Hæstiréttur sakfelldi ákærða fyrir brot gegn 1. mgr. 226. gr. almennra hegningarlaga og staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um brot gegn 194. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, sbr. 2. gr. laga nr. 40/1992. Refsing þótti með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga hæfi
Hæstaréttardómur 1993:1168 í málinu nr. 102/1993.
1. Aðfaranótt laugardagsins 3. ágúst 1991 að heimili hennar að X gripið um kverkar henni, slegið hana hnefahögg á hægri vanga, skellt henni í gólfið, slegið hana liggjandi mörg högg í andlit með olnbogum og sparkað í hana með þeim afleiðingum að hún marðist á kálfum, hálsi og undir höku og marðist og bólgnaði yfir kinnbeinum.
2. Aðfaranótt sunnudagsins 2. ágúst 1992 að heimili þeirra að Y veist að henni með höggum og spörkum, tekið um hár henni og dregið hana niður á gólfið, sparkað í hana liggjandi og, er henni tókst að hlaupa út úr húsinu, sparkað í hana, svo að hún féll í jörðina, og slegið höfði hennar utan í hurðarkarm útidyra með þeim afleiðingum að hún marðist á öllum útlimum, baki, öxlum, maga, lendum, lærum og hársverði.
Telst þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, sbr. 10. gr. laga nr. 20/1981.
Ákærði neitaði afdráttarlaust sök og bar mikið í milli í framburði hans og K.
Fyrri ákæruliður.
Ákærði og K voru ekki í sambúð en ákærði bjó í næsta stigagangi við hana og áttu þau sam
Merki voru um átök í íbúð K er lögregla koma á vettvang. Ákærði sagði K hafa boðið sér heim til sín, þeim hafi sinnast og K hafi rekist í dyrakarm og dottið á rúm og þannig hlotið áverka. K sagðist hins vegar hafa verið á leið út er ákærða bar þar að og hann hafi strax ráðist á hana, skellt upp við vegg, grýtt í gólfið og lamið hana í forstofunni. Barsmíðarnar héldu áfram eftir hún náði að kalla á hjálp. Útilokað þótti að áverkar hennar hefðu hlotist af að skella utan í hurðarkarm eða rúm.
26. september 1991 dró K kæru sína til baka með þeim orðum að af persónulegum ástæðum neyddist hún til þess. Tók hún fram að kæran byggðist ekki á röngum sakargiftum. 11. septem
Sakargögn greindu frá þó nokkrum tilfellum fyrir og eftir tilgreindan atburð þar sem K kvartar við lögreglu vegna ætlaðra líkamsmeiðinga er hún hafi mátt þola af hendi ákærða, án þess að því fylgdi formleg kæra af hennar hálfu.
Héraðsdómur taldi skýringar ákærða á áverkum K ósennilegar og útilokaðar og ekki samrýmast sýnilegum sönnunargögnum. Ákærði var talinn hafa gerst sekur um líkamsárás gegn K og sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, sbr. 10. gr. laga nr. 20/1981.
Síðari ákæruliður.
Ákærði sagðist ekki vita hver væri valdur að áverkum þeim sem K hafði hlotið en viður
Ákærði var sýknaður af þessum ákærulið vegna ágalla á málsmeðferð og sönnunarskorti.
Ákærði hafði áður gerst sekur um umferðarlagabrot. Við ákvörðun refsingar vegna fyrri ákæruliðar var litið til þess að ákærði gekk á fólskulegan hátt í skrokk á sambýliskonu sinni og veitti henni umtalsverða áverka. Ákærði sýndi eftir brotið engin merki iðrunar, og þótti refsing hans sem varðaði, eins og að framan greinir, við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningar
Málinu var skotið til Hæstaréttar að ósk ákærða sem krafðist sýknu. Af hálfu ákæruvalds var krafist staðfestingar á dómi héraðsdóms.
Fyrir Hæstarétti reyndi eingöngu á saknæmi þess verknaðar sem um ræðir í fyrri lið ákæru. Kæra vegna hans var dregin til baka með skriflegri yfirlýsingu haustið 1991, eins og lýst var í hinum áfrýjaða dómi. Í framhaldi af því staðfesti ríkissaksóknari með bréfi 12. júní 1992 til bæjarfógeta í Vestmannaeyjum að ekki væri krafist frekari aðgerða í málinu. Upplýst var að kærandi og ákærði ákváðu að taka aftur upp sambúð skömmu eftir að kæran var afturkölluð, en þau höfðu þar áður átt heimili í næsta nágrenni hvort við annað. Bjuggu þau saman í íbúð sem ákærði festi á kaup þar til atvik þau gerðust sem lýst var í síðari lið ákæru. Óskaði kærandi þá eftir endurupptöku á málinu, auk þess sem hún kærði síðari atburðinn.
Hæstiréttur taldi ljóst að fyrrgreind ákvörðun ákæruvalds um að fella niður aðgerðir hefði ekki verið tekin vegna annars en þeirrar yfirlýsingar sem fyrir lá frá kæranda. Var ríkissak
Hæstaréttardómur 1995:1190 í málinu nr. 30/1995.
— Nauðgun, með því að hafa sunnudaginn 17. apríl 1994 með ofbeldi þröngvað eiginkonu sinni, K, sem hann hafði skilið við að borði og sæng, til holdlegs samræðis á heimili henn
— Húsbrot með því að hafa að kvöldi sunnudagsins 24. júlí 1994 ruðst í heimildarleysi inn í íbúð á fyrstu hæð hússins X í Reykjavík. Taldist þetta varða við 231. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940.
Fyrri ákæruliður.
Ákærði hafði komið að heimili K að kvöldi sunnudagsins 17. apríl 1994 og barið að dyrum. K opnaði, en hún hafði talið ákærða úti á landi. Hann kom svo óvelkominn inn í íbúðina og þröngvaði K til holdlegs samræðis í viðurvist tveggja ungra barna þeirra. Í fyrstu kvað M ásakanir K vera uppspuna og sagðist hafa haft við hana samfarir með hennar samþykki en breytti svo framburði sínum og kvaðst hafa gert sér grein fyrir því að hann beitti hana valdi. Fyrir dómi neitaði ákærði sök.
Síðari ákæruliður.
Ákærði játaði fyrir dómi efni þessa ákæruliðar rétt.
Varðandi fyrri ákærulið taldi dómurinn ekki mark takandi á breyttum framburði ákærða fyrir dóminum og ástæðu þær sem hann tiltók fyrir breyttum framburði úr lausu lofti gripnar og engan stuðning fá af gögnum málsins. Dómurinn taldi sannað með framburði ákærða hjá lögreglu, en gegn neitun hans fyrir dómi, og með framburði K hjá lögreglu og fyrir dómi, sem fékk stuðning af öðrum gögnum málsins, m.a. læknisfræðilegum gögnum, að ákærði hefði framið þá háttsemi sem í ákæru greindi og þar með gerst brotlegur við 194. gr. almennra hegn
Varðandi síðari ákærulið þótti, með skýlausri játningu ákærða sem fékk stuðning af öðrum gögnum málsins, sannað að ákærði hefði gerst sekur um þá háttsemi sem ákært var út af. Ákærði hafði áður hlotið sex refsidóma og gengist undir þrár dómsáttir vegna ýmissa brota. Þótti refsing hæfilega ákvörðuð með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga fangelsi í 18 mánuði. K voru dæmdar skaðabætur að fjárhæð 400.000 kr., auk dráttarvaxta.
Málinu var skotið til Hæstaréttar að ósk ákærða og einnig af hálfu ákæruvaldsins til þyngingar refsingar og greiðslu skaðabóta samkvæmt upphaflegri kröfu kæranda.
Hæstiréttur taldi ekki hafa verið sýnt fram á nokkuð sem veikti mat héraðsdómara á sönnunargildi munnlegs framburðar fyrir dómi í málinu. Með skírskotun til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sakfellingu ákærða og heimfærslu brota til refsiákvæða. Þá var ákvæði dómsins um skaðabætur staðfest.
Hins vegar þótti með vísun til þess að atlaga ákærða var gerð í viðurvist barna hans og kæranda ekki hjá því komist að þyngja þá refsingu sem honum var ákveðin í héraðsdómi. Þótti hún með skírskotun til forsendna refsiákvörðunar í hinum áfrýjaða dómi hæfilega ákveðin tveggja ára fangelsi.
Hæstaréttardómur 1995:2081 í málinu nr. 161/1995.
Málinu var skotið til Hæstaréttar að ósk ákærða. Ákæruvaldið krafðist þess að ákærði yrði sakfelldur samkvæmt ákæru og refsing þyngd frá því sem ákveðið var í héraðsdómi. Þá krafðist ákæruvaldið þess að svipting ökuréttar í héraðsdómi yrði staðfest. Loks var þess krafist að ákærði yrði dæmdur til greiðslu þeirrar skaðabótakröfu sem fram var sett í ákæru og nam 3.465.625 kr., auk vaxta og kostnaðar.
Ákærði krafðist sýknu af ákæru fyrir brot gegn 194. gr. og 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, og að brot hans yrði einungis talið varða við 3. mgr. 218. gr. a sömu laga. Þá krafðist hann styttingar á sviptingu ökuréttar. Loks krafðist ákærði þess að viðurkennt yrði að hann hefði að fullu greitt skaða- og miskabætur með því að greiða kæranda 200.000 kr. 31. ágúst 1995, en ella yrði bótakrafan lækkuð verulega og framangreind fjárhæð metin til frádráttar.
Nokkur ný gögn voru lögð fyrir Hæstarétt, meðal annars bréf lögmanns kæranda til ríkis
Hæstiréttur taldi með skírskotun til gagna málsins fyllilega í ljós leitt að atlaga ákærða að kæranda var bæði langvinn og hrottafengin. Hann neytti aflsmunar í hamslausri bræði, eins og hann hafði sjálfur viðurkennt, og veittu lýsingar lögreglu á vettvangi og áverkar kæranda örugga vitneskju um það að hún hefði nær engum vörnum við komið. Ekki væru komin fram nægileg rök til að ætla að niðurstaða héraðsdómara um sönnunargildi munnlegs framburðar fyrir dómi væri röng svo að einhverju skipti um úrslit málsins, sbr. 5. mgr. 159. gr. laga nr. 19/1991, sbr. 19. gr. laga nr. 37/1994. Við svo búið og með hliðsjón af öðru því sem fram var komið þótti sannað að ákærði hefði gerst sekur um þau brot sem honum voru gefin að sök í ákæru. Eins og atvikum og aðstöðumun aðila var háttað kom ekki til álita að færa líkams
Með þessum athugasemdum var hinn áfrýjaði dómur staðfestur með skírskotun til for
Hæstaréttardómur 1996:2146 í málinu nr. 145/1996.
Málinu var skotið til Hæstaréttar að ósk ákærða en einnig af hálfu ákæruvalds til þyngingar á refsingu. Þess var krafist að ákærði yrði dæmdur til að greiða K skaðabætur að fjárhæð 1.500.000 kr., auk dráttarvaxta.
Hæstiréttur staðfesti með skírskotun til forsendna héraðsdóms niðurstöðu hans um refsingu og miskabætur, en krafist hafði verið skaðabóta fyrir atvinnutjón, sjúkrakostnað og þjáningar. Öðrum bótakröfum var vísað frá héraðsdómi þar sem ljóst þótti að á þessu stigi væri ekki unnt að rökstyðja eða sundurliða skaðabótakröfu frekar og því af þeim sökum nauðsynlegt að hafa kröfu á hendur ákærða uppi „á síðari stigum eftir venjulegum leiðum“.
Héraðsdómar.
Dómur héraðsdóms Reykjavíkur 4. mars 1993 í sakamálinu nr. 59/1993.
M og K höfðu búið saman í rúm þrjú ár en K átt frumkvæði að skilnaði þeirra. Hún sagðist hafa þurft að ala önn fyrir ákærða sem ekki hafði atvinnu og safnaði skuldum en jafnframt taldi hún hann gera óhóflegar kröfur um ástalíf og sagði hann hafa ítrekað beitt sig ofbeldi undir lokin þegar hún lét ekki undan ástleitni hans. Hún hafði kært hann fyrir einelti og líflátshótanir nokkrum mánuðum fyrir atburðinn. Ákærði var algerlega mótfallinn skilnaðinum og þegar hann vann óhæfuverkið hafði K nýlega skýrt honum frá því að hún væri í ástarsambandi við annan mann og ákærði tekið þeim tíðindum mjög illa.
M var sakfelldur fyrir brot gegn 225. gr. og 194. gr. almennra hegningarlaga. Í dóminum er gerð grein fyrir trúarskoðunum og uppruna M og brot hans talið framið í áköfu afbrýðis
Dómur héraðsdóms Reykjavíkur 19. maí 1993 í sakamálinu nr. 258/1993.
Ákærði og K höfðu átt í erjum vegna skilnaðar og afhendingu lausafjármuna sem voru á heim
M játaði og var sakfelldur fyrir brot gegn 231. gr. almennra hegningarlaga. Hann hafði ekki hlotið refsingu síðan 1984 en átti þá langan brotaferil að baki. Refsing þótti hæfilega ákvæðin 30 daga varðhald en fullnustu refsingar var frestað og látin falla niður héldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga í tvö ár frá dómsuppkvaðningu. Skaðabótakröfu var vísað frá.
Dómur héraðsdóms Reykjavíkur 19. maí 1993 í sakamálinu nr. 291/1993.
M viðurkenndi framangreinda háttsemi en sagði samskiptaörðugleika hans og K einkum stafa af því sem hann kallaði brot K á umgengnisrétti hans við börn sín og K. Gögn málsins báru með sér að um langvarandi deilur milli ákærða og K vegna barnanna var að ræða.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 232. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 16/1976. Hann hafði áður hlotið lögregluáminningu og tvær dómsáttir vegna umferð
Dómur héraðsdóms Reykjavíkur 18. ágúst 1993 í sakamálinu nr. 396/1993.
1. Aðfaranótt sunnudagsins 8. mars 1992 í bifreið K, eftir að hafa verið á skemmtistaðnum B, gripið í hægri handlegg K og snúið upp á hendina er konan vildi yfirgefa bifreiðina. Afleiðingar þessa urðu tognun, bólga og þreifieymsli yfir mjúkhlutum hægri framhand
2. Aðfaranótt sunnudagsins 2. ágúst 1992 ráðist á konuna í íbúð hennar, sest ofan á hana, slegið hana í andlitið og tekið hana kverkataki, með þeim afleiðingum að konan hlaut glóðarauga á báðum augum, húðrispur á hálsi, beggja vegna og þrjá marbletti yfir hægri úlnlið.
Framanlýst háttsemi ákærða samkvæmt ákæruliðum 1 og 2 taldist varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, sbr. 10. gr. laga nr. 20/1981.
3. Um kl. 9.00 laugardagsmorguninn 14. nóvember 1992 ruðst heimildarlaust inn í íbúð konunnar og slitið símann úr sambandi er hún hugðist hringja í lögreglu.
Taldist þetta varða við 231. gr. almennra hegningarlaga.
4. Um kl. 10.40 sama dag ráðist á konuna í íbúð hennar, hrint henni ofan í svefnsófa og lamið hana í andlit og víðar á líkamann. Síðan rifið konuna úr buxunum og nærbuxum, afklæðst sjálfur og með ofbeldi og hótunum þröngvað henni til holdlegs samræðis. Afleiðingar af þessari atlögu ákærða að konunni urðu ákveðnir verkir í hálsvöðvum, framan til beggja vegna, þrjú fingraför aftan á vinstri upphandlegg ofarlega, 5x5 sm mar
Taldist þetta varða við 194. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 2. gr. laga nr. 40/1992, en til vara við 1. mgr. 217. gr. sömu laga.
5. Laust fyrir kl. 3.00 aðfaranótt mánudagsins 16. nóvember ruðst heimildarlaust inn í áðurnefnda íbúð K og stolið þar áfengisflösku.
Taldist þetta varða við 231. gr. og 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga.
6. Nokkru eftir kl. 5.00 aðfaranótt sunnudagsins 6. júní 1993 klifrað upp á svalir við íbúð K og þar tekið í og hrist bæði svalahurð og glugga. Einnig hrist til og bankað í hurð og glugga í kjallara hússins. Þetta gerði ákærði í því skyni að brjótast inn eða hræða konuna.
Taldist þetta varða við 231. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningalaga, en til vara við 1. mgr. 232. gr. sömu laga, sbr. 4. gr. laga nr. 16/1976.
Krafist var miskabóta að fjárhæð 900.000 kr. til handa K.
Ákærði og K hófu sambúð í desember 1989 og stóð hún óslitið fram í ágúst 1991 en með hléum þar til í október 1992. Frá því í mars 1992 var samband þeirra stormasamt og kom oft til deilna með þeim og átaka. 30. mars 1993 sætti ákærði formlegri lögregluáminningu fyrir ónæði við K.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. (ákæruatriði 1 og 2), 231. gr. (ákæru
Dómur héraðsdóms Reykjavíkur 15. október 1993 í sakamálinu nr. 270/1993.
Taldist þetta varða við 194. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, sbr. 2. gr. laga nr. 40/1992. K krafðist miskabóta að fjárhæð 750.000 kr.
M og K hófu sambúð í lok september 1991. Sambúðin varði þar til viku fyrir hinn kærða atburð en ákærði kvaðst hafa komið aftur inn á heimilið 28. desember 1992. Sambúðin gekk erfiðlega, a.m.k. á köflum. Um kvöldið 28. desember hafði kastast í kekki milli þeirra M og K.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn 194. gr. almennra hegningarlaga. Í framburði hans kom m.a. fram að hann hafi viljað láta líta svo út að hann væri maður til að nauðga konu og hann hafi nauðgað K til að refsa henni fyrir að hafa kúgað sig í sambúðinni. Ákærði hafði ekki áður gerst sekur um brot gegn almennum hegningalögum og þótt refsing hans hæfilega ákvörð
Dómur héraðsdóms Reykjavíkur 24. nóvember 1993 í sakamálinu nr. 496/1993.
Ákærða var gefið að sök að hafa ráðist margoft á eiginkonu sína, A, sem lést 3. ágúst 1992, með líkamlegu ofbeldi og veitt henni margvíslega áverka. Í októberbyrjun 1990 réðst ákærði á A í baðherbergi hússins, keyrði hana í gólfið, reif í hár hennar og sló höfði hennar ítrekað í gólfið, stappaði á líkama hennar og höfði og sparkaði í hana. Eitt sinn sparkaði ákærði A niður stiga með þeim afleiðingum að hún missti fóstur. Ákærði réðst einnig margoft á börn þeirra, B, C, og D, allt frá barnsaldri, lamdi þau með hnefunum, leðurbelti, brauðbretti og herðatré og eitt sinn braut ákærði disk á höfði C. Ákærði réðst fyrst á B með barsmíðum þegar hann var átta ára en síðast í mars 1991 með því að klóra hann í andlitið og bringuna og reynt að snúa upp á handleggi hans. Í það skipti tókst B að verjast frekari árásum ákærða þar sem hann hafði lagt stund á sjálfsvarnaríþróttir frá fjórtán ára aldri í því skyni að verjast árásum föður síns. Afleiðingar þessara sífelldu líkamsárása ákærða á eiginkonu sína og börn urðu margvíslegir áverkar og skaði á andlegri heilsu barnanna, einkum næstyngstu dótturinnar, D, sem hafði dvalið af þessum sökum á barna- og unglingageðdeild Landspítalans frá 11. maí 1992 og var þar enn þegar ákært var.
Framanlýst háttsemi ákærða taldist varða við 1. mgr. 191. gr. og 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981, og 45. og 47. gr. laga um vernd barna og ungmenna, nr. 53/1966, sbr. nú 63., 64. og 66. gr. laga um sama efni, nr. 58/1992.
A gaf skýrslu í málinu áður en hún lést og skýrði hún m.a. svo frá að ákærði hafi ítrekað lagt á hana hendur á þeim tíma sem þau bjuggu saman. Kvað hún tilefnið oftast lítið og hafi börn þeirra oft séð til hans, en ekki hafi verið um önnur vitni að ræða. A kvaðst ekki hafa leit
Ekki þótti sannað að ákærði hefði sparkað eiginkonu sinni niður stiga með þeim afleiðing
Dómurinn taldi ákvæði 191. gr. almennra hegningarlaga og 47. gr. laga nr. 53/1966 ekki eiga við um háttsemi ákærða eins og hér stæði á. Þá taldi dómurinn með hliðsjón af því sem rakið var um afleiðingar árásanna að háttsemi hans varðaði við 45. gr. laga nr. 53/1966, sbr. nú 64. og 66. gr. laga nr. 58/1992, og 217. gr. almennra hegningarlaga, enda skilyrðum 1. mgr. 117. gr. laga nr. 19/1991 til að beita því refsiákvæði fullnægt.
Ákærði hafði ekki áður sætt refsingu svo kunnugt væri. Við ákvörðun refsingar ákærða var haft í huga hið langvarandi ofbeldi sem hann beitti fjölskyldu sína, sérstaklega börn sín, frá unga aldri. Meðferð málsins leiddi auk þess í ljós að augljóst væri að ákærði hafði ekki búið börnum sínum þann aðbúnað sem íslensk barnaverndarlöggjöf býður og í verulegum mæli brotið gegn skyldum sínum sem foreldri. Þótti refsing ákærða því hæfilega ákveðin með hliðsjón af framansögðu og 77. gr. almennra hegningarlaga, fangelsi í tólf mánuði.
Dómur héraðsdóms Reykjavíkur 4. janúar 1994 í sakamálinu nr. 724/1993.
M og K höfðu verið í slitróttri sambúð í um ellefu ár. K sagði oft hafa slegið í brýnu með þeim og ákærði hafi margsinnis gengið í skrokk á henni. Meðal annars var K lögð inn á meðgöngudeild Landspítalans árið 1987 eftir barsmíðar ákærða, þá vanfær.
Í umrætt sinn sagðist K hafa staðið upp úr sófa til að svara í síma er M hafi ráðist á sig sér algerlega að óvörum og hótað að drepa sig. Þriggja ára sonur þeirra var nærstaddur. M neitaði hins vegar sök og sagði að þau hefðu rekist saman og K ráðist á sig, hann hafi verið að verja sig.
M var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga. Hann hafði áður hlotið 16 dóma fyrir ýmis brot og verið sektaður átta sinnum. Þótti refsing hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga.
Dómur héraðsdóms Reykjavíkur 3. febrúar 1994 í sakamálinu nr. 738/1993.
Fyrir lá skýlaus játning ákærðu. Sagði hún verknaðinn unninn í sturlun sem hafði verið að ágerast hjá henni á undan atburðinum, en ákærða hafði verið veik af geðklofa í mörg ár. Tveimur dögum fyrir verknaðinn hafði hún leitað eftir því að verða lögð inn á geðdeild en ekki var orðið við því.
Dómurinn taldi sannað að ákærða stakk M á hol með hnífi og olli honum lífshættulegum áverka. Yrði að telja að ákærðu hafi hlotið að vera ljóst að langlíklegast væri að maðurinn biði bana af hnífslaginu og einnig að hrein hending hafi ráðið því að svo fór ekki. Verkið var talið varða við 211. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga. Hins vegar var mat dómsins að ákærða hafi, þegar hún vann verkið, verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum vegna geðveiki. Því var hún skv. 15. gr. almennra hegningarlaga sýknuð af refsikröfum ákæruvaldsins. Ákærða var á góðum batavegi og því ekki talin ástæða til að dæma hana til að sæta öryggisgæslu.
Dómur héraðsdóms Reykjavíkur 5. júlí 1994 í sakamálinu nr. 243/1994.
Ákærða kvað M hafa lagt sig í einelti síðan þau slitu samvistum. Hafi hann margoft skemmt bifreið sína, hótað henni í síma og einnig ráðist á sig. Sambúð þeirra hafði varað í 2–3 ár og gengið á ýmsu meðan á henni stóð. Sambúðinni hafi verið lokið um það bil ári fyrir þessa atburði. Faðir ákærðu bar einnig um símaónæði M í garð ákærðu og fjölskyldu hennar. Hann sagðist einnig gruna að M hafi skemmt bifreið ákærðu en kvaðst ekki hafa séð það.
Ekki var talið sannað að K hefði brotið gegn 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga. Skýringar K um að hún hefði snúið sér við með flösku í hendi er hún var á flótta undan M, og flaskan rekist í höfuð hans, voru teknar til greina og hún því einnig sýknuð af ákæru um brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga.
Dómur héraðsdóms Reykjavíkur 27. apríl 1995 í sakamálinu nr. 333/1995.
M og K hófu sambúð í maí 1994 en slitu henni í október sama ár. Sambúðin hafði verið stirð og gengið erfiðlega. K kom heim til ákærða síðla dags 28. október, en þá var sambúð þeirra lokið. Kom þar til deilna milli þeirra sem enduðu með barsmíðum sem stóðu yfir í um tvær klukkustundir og nauðgun. K kvað M hafa ráðist á sig oft áður af engu tilefni.
Ákærði neitaði að hafa gerst sekur um nauðgun og neitaði jafnframt að hafa valdið K áverkum, en viðurkenndi að til átaka hafi komið á milli þeirra. Áverkar á honum þóttu hins vegar ekki benda til þess að um mikla mótspyrnu hafi verið að ræða af hálfu K.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn 194. gr. og 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Hann hafði ekki áður hlotið refsingu og þótti refsingin hæfilega ákveðin fangelsi í þrjú ár. K voru dæmdar miska- og skaðabætur að fjárhæð 940.393 kr., auk dráttarvaxta.
Dómur héraðsdóms Reykjavíkur 5. desember 1995 í sakamálinu nr. 1049/1995.
Íbúð þessa hafði M, fyrrverandi sambýlismaður ákærðu, á leigu. Ákærða átti við geðræn vandamál að stríða. Hún játaði brot sitt og kvaðst hafa ætlað að hitta fyrrum sambýlismann sinn, en hann hafi ekki verið heima, hún hafi þá fyllst mikilli bræði, en á ýmsu hefði gengið í sambúð þeirra og hann slitið henni nokkrum dögum áður. Auk þess að brjótast inn og valda eldsvoða vann hún skemmdarverk á húsbúnaði í íbúðinni.
Dómurinn taldi að ákærðu hlyti að hafa verið ljóst að með því að leggja eld að íbúð í fjölbýlishúsi að næturlagi, þegar búast mátti við að íbúar væru sofandi, stefndi hún manns
Dómur héraðsdóms Reykjavíkur 29. mars 1996 í sakamálinu nr. 212/1996.
Þau M og K höfðu búið saman nokkurn tíma en átt í sambúðarerfiðleikum. Þau höfðu verið á skemmtistað þetta kvöld og þótti ákærða K hafa sýnt öðrum manni of mikinn áhuga. Eftir að heim var komið sinnaðist þeim vegna þessa. K hafði þá farið að hátta en M kom á eftir henni og endaði með því að hann gekk í skrokk á henni þar til henni tókst að flýja út úr íbúðinni.
Ákærði játaði brot sitt og var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í átta mánuði. K voru dæmdar miskabætur að fjárhæð 150.000 kr., auk dráttarvaxta.
Dómur héraðsdóms Reykjavíkur 22. apríl 1996 í sakamálinu nr. 305/1996.
Ákæru fyrir húsbrot var vísað frá dómi þar sem refsikrafa K þótti ekki ótvíræð.
M og K voru skilin er atburðurinn varð. Þau höfðu þó tekið saman eftir skilnaðinn en sú sambúð var slitrótt. Ákærði kvaðst ákaflega lítið muna af því sem gerst hafði. Lögregla var
kölluð á vettvang af ungum syni K og er þeir komu sat ákærði klofvega á K í rúmi hennar og hélt um hendur hennar.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga og þótti refsing hans hæfilega ákveðin 15.000 króna sekt í ríkissjóð, ella varðhald í fjóra daga.
Dómur héraðsdóms Reykjavíkur 16. janúar 1997 í sakamálinu nr. 856/1996.
K hafði hleypt fyrrverandi sambýlismanni sínum inn á heimili sitt og kom til deilna milli þeirra. Hún sagði hann hafa verið með læti frammi á stigaganginum og því hafi hún hleypt honum inn. Tilefnið hafi verið það að reyna að fá hana til að hefja sambúð með ákærða á ný. Hún hafi ekki viljað það og hafi það verið tilefni árásarinnar. K kvað ákærða hafa misþyrmt sér alla nóttina, meðal annars slegið höfði sínu utan í rúmgafl, og hún hafi margsinnis misst meðvitund. Ákærði hafi brotið símann og hótað að drepa hana ef hún reyndi að kalla á hjálp.
Íbúðin bar þess merki að mikil átök höfðu átt sér stað. Ákærði viðurkenndi að hafa slegið eða danglað til K. Hann sagði mjög lítið þurfa til að koma svo K hljóti marblett, það vissi hann eftir 1 1/ 2 árs sambúð með henni.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga. Hann hafði áður hlotið tíu refsidóma. Brot ákærða þótti sérstaklega vítavert, sbr. 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga i.f. Hann veittist að fyrrverandi sambýliskonu sinni á dvalarstað hennar með höggum og spörkum um allan líkamann. Ákærði eyðilagði símann í íbúðinni til að koma í veg fyrir að konan gæti kallað á hjálp. Refsing þótti hæfilega ákvörðuð fangelsi í þrjá mánuði. K voru dæmdar miskabætur að fjárhæð 150.000 kr., auk dráttarvaxta.
Dómur héraðsdóms Reykjavíkur 4. apríl 1997 í sakamálinu nr. 828/1996.
1. Á tímabilinu frá 23. júní til 15. ágúst 1995 raskað friði nefndrar X, með því að hringja margsinnis í síma hennar að Z.
2. Hinn 27. júní 1996 enn á ný raskað friði þeirra mæðgna, með því að hringja án afláts dyrabjöllu og berja útidyr á heimili nefndrar X að Z, þannig að verulegt ónæði varð af fyrir þær mæðgur.
Taldist þetta varða við 1. mgr. 232. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 16/1976.
Hinn 7. apríl 1995 var ákærða veitt lögregluáminning hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins fyrir brot á friðhelgi einkalífs með því að hafa frá aprílmánuði 1992 til 20. mars 1995 valdið þrálátu og margítrekuðu ónæði og ofsóknum með símhringingum og haft í frammi hótanir í garð fyrrverandi eiginkonu sinnar, K, og móður hennar, X. Ákærði og K höfðu verið í hjúskap og áttu tvo syni. Sambúð þeirra lauk um páska 1992 og fékk K forræði sonanna. Var ákærði ósáttur við þá niðurstöðu.
K kvað ákærða hafa ónáðað sig með sífelldum hringingum og hótunum, meðal annars þeim að hún skyldi sjá blóð renna. Hún kvað ónæði ákærða hafa haldið fjölskyldunni „í heljargreipum“ í mörg ár og hafi þau ekki getað um frjálst höfuð strokið. Hann hafi hótað að taka börnin og fara með þau úr landi, en ákærði var af erlendum uppruna.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 232. gr. almennra hegningarlaga. Við mat á refsingu ákærða þótti bera að hafa í huga að háttsemi hans hafði staðið yfir um nokkurra ára skeið og ljóst var af framburði þeirra mæðgna að hún hafði haft mjög þrúgandi áhrif á daglegt líf þeirra þannig að þær höfðu ekki getað um frjálst höfuð strokið. Þótti refsing hans hæfilega ákveðin varðhald í þrjá mánuði, en þar sem ákærði hafði ekki áður sætt refsingum þótti mega fresta fullnustu refsingarinnar og fella hana niður að liðnum fimm árum héldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Dómur héraðsdóms Reykjavíkur 28. maí 1997 í sakamálinu nr. 290/1997.
Taldist brot ákærða gegn X varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 en gegn K töldust brot hans varða við 231. gr., 1. mgr. 218. gr. og 233. gr. sömu laga, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981.
Gerðar voru bótakröfur, samtals 1.706.808 kr. f.h. K og 361.464 kr. f.h. X, auk dráttar
M og K höfðu búið saman í nokkur ár en skilið að skiptum í maí 1995. Ákærði var ákaflega ósáttur við skilnað þeirra og þoldi ekki að sjá K með öðrum manni. Óljóst var hvort hann komst inn í íbúðina þessa nótt með lyklum eða í gegnum opnar svaladyr en hann trylltist er hann sá K sitja ásamt X í sófa og réðst á þau. Hann sagðist hafa verið mjög hrærður og sár yfir að sjá K með öðrum karlmanni og kannaðist við að hafa slegið þau utan undir. Bæði K og X báru að ákærði hafi hótað K lífláti, að eina leiðin út úr þessu sambandi væri að hann dræpi hana.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn 231. gr., 1. mgr. 217. gr. (líkamsárás á X), 1. mgr. 218. gr. (líkamárás á K) og 233. gr. almennra hegningarlaga.
Ákærði hafði áður ellefu sinnum gengist undir dómsátt og hlotið tvo refsidóma. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að ákærði fór í heimildarleysi inn á heimili K og réðist þar á frekari vífilengja að þeim K og X á hrottafenginn hátt. Refsing þótt hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði.
Stærstum hluta bótakrafna K var vísað frá þar sem umfjöllun um þá liði mundi tefja málið. Henni voru dæmdar 83.708 kr. í skaðabætur, auk dráttarvaxta. X voru dæmdar skaðabætur að fjárhæð 171.464 kr., auk dráttarvaxta.
Dómur héraðsdóms Norðurlands vestra 20. mars 1997 í sakamálinu nr. 1/1997.
1. Aðfaranótt sunnudagsins 24. nóvember 1996 veist að henni með því að þvinga hana í gólfið, rífa þar utan af henni föt og veita henni högg í andlit og líkama og rífa í hár hennar þannig að hárflygsur losnuðu, allt með þeim afleiðingum að hún hlaut glóðaraugu báðum megin, mar á hægri upphandlegg, vinstri olnboga, hægra megin á hálsi, hægra brjósti, hægra læri, ofan vinstra hnés og innan á neðri vör, særindi undir neðri gómi framan til, hárleysi á tveimur stöðum á höfði auk klórs, roða og rispna víða um líkama.
2. Aðfaranótt laugardagsins 7. desember 1996 veitt henni hnefahögg í andlit með þeim afleiðingum að hún hlaut mar á hægri kinn.
Taldist háttsemin varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, sbr. 10. gr. laga nr. 20/1981. M var einnig ákærður fyrir umferðarlagabrot.
Ákærði játaði háttsemi sína en taldi varðandi ákærulið 2 að hann hefði verið í sjálfsvörn en þó gert sér vel grein fyrir því að hann hafi gengið of langt í vörn sinni.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga. Refsing þótti hæfilega ákveðin varðhald í 60 daga. Við ákvörðun refsingar var haft í huga að brotin voru framin á heimili M og K þar sem hann veittist að henni með barsmíðum með þeim afleiðingum sem lýst var í ákæru. Brotin voru framin meðan ákærði var undir áhrifum áfengis en tekið fram að það gæfi honum engar málsbætur. Engin atriði önnur en hreint sakavottorð voru til refsilækkunar.
Dómur héraðsdóms Austurlands 22. mars 1996 í sakamálinu nr. 337/1996.
Taldist háttsemin varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981.
Ákærði játaði brot sinn að öðru leyti en því að hann hefði ráðist á K með spörkum. Ákæru
Ákærði hafði áður sætt refsingum vegna umferðarlagabrota og hlotið dóm fyrir hegningarlagabrot. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að líkamsárás ákærða virtist hafa verið tilefnislaus eða -lítil, en einnig að hann gekkst greiðlega við broti sínu. Refsing þótti hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá mánuði en fullnustu tveggja mánaða var frestað og látin falla niður ef ákærði heldi almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga í þrjú ár frá birtingu dóms.
Dómur héraðsdóms Suðurlands 30. mars 1994 í sakamálinu nr. 13/1994.
Þau M og K höfðu verið í nánu sambandi um skeið en sambandið hafði tíðum verið stormasamt og oft slegið í brýnu milli þeirra. M sagði ástæðu árásarinnar vera þá að K hefði skömmu áður misboðið honum með framferði sínu. Hún hafi sest í fang ókunnugs manns og farið að „skaka“ sér á honum. Kvaðst hann hafa slegið K í kjölfar þessa. Þau voru bæði ölvuð. M kvaðst á þessum tíma hafa litið svo á að K væri unnusta hans. K tók fram að þau hafi ekki verið í sambúð á þessum tímabili en það hafi allt eins verið ætlun þeirra að taka upp fyrra samband. K sagði árásina tilefnislausa og kvað skýringar M fjarstæðukenndar. Vitni voru að árásinni og báru þau á svipaðan veg og ákærði.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Hann hafði áður sætt viðurlögum vegna umferðarlagabrota. Refsing þótti hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði, en þegar litið var til allra atvika og sakarferils ákærða þótti mega fresta fullnustu refsingarinnar og láta hana falla niður að liðnum þremur árum frá dómsuppkvaðningu, héldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
Dómur héraðsdóms Austurlands 22. nóvember 1993 í sakamálinu nr. 1026/1993.
M var einnig ákærður fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
Sambúð þeirra M og K hafði staðið frá því í september 1991. Þau höfðu þetta kvöld farið saman á skemmtistað. Er heim var komið réðst ákærði að K með höggum og spörkum, en hún hélt á sex mánaða gömlu barni þeirra í fanginu. Eftir átökin var barnið með lófastóran mar
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga. Hann hafði áður sætt refsingum fyrir umferðarlagabrot og hegningarlagabrot. Refsing þótti hæfilega ákveðin varðhald í 60 daga. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að ákærði framdi árásina í afbrýðiskasti. K voru dæmdar skaðabætur að fjárhæð 122.550 kr., auk vaxta.
Dómur héraðsdóms Reykjaness 31. mars 1995 í sakamálinu nr. 52/1995.
Þau M og K höfðu búið saman í nokkra mánuði en K flutt frá honum í maí 1994. Hún vildi slíta sambandi þeirra en það var hann ósáttur við. M var afbrýðissamur og sakaði K um samskipti við aðra menn. Kvöldið fyrir árásina hafði M náð lykli að íbúð K og notað hann til að komast inn í íbúðina. Hann kvaðst hafa verið afbrýðissamur og tekið lykilinn í þeim tilgangi að komast síðar inn í íbúðina til að lumbra á K. M kvaðst hafa ráðist á K í algeru bræðiskasti og lamið hana, bæði með höndunum og með hamri með plasthaus. Smám saman hafi svo runnið upp fyrir honum hvað hann var að gera og hann sleppt K. Ákærði gaf sig fram við lögreglu síðar um nóttina og játaði brot sitt.
Geðlæknir taldi árás ákærða á K fyrst og fremst hafa mótast af þörf hans fyrir að hafa einhvern til að hugsa um sig, þörf hans fyrir að geta stjórnað K og svo vonbrigðum, afbrýðis
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn 231. gr. og 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Brotið þótti hættulegt með hliðsjón af aðferð hans og því tæki sem hann notaði við árásina. Refsing þótti hæfilega ákveðin fangelsi í tólf mánuði. Þegar litið var til aldurs ákærða (eldri maður), aðstæðna hans, þess að hann hafði ekki áður gerst sekur um ofbeldisverknað og að hann gaf sig fram við lögreglu og játaði brot sitt hreinskilnislega, þótti mega fresta fullnustu níu mánaða af refsingunni og fella niður að liðnum tveimur árum frá dómsuppsögu héldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
Dómur héraðsdóms Norðurlands eystra 14. júní 1993 í sakamálinu nr. 56/1993.
1. Húsbrot, með því að hafa laust eftir kl. 6:00 ruðst í heimildarleysi inn í kjallaraíbúð að X, þar sem stúlkurnar Y og K bjuggu, en ákærða var kunnugt um að K, fyrrverandi sam
2. Kynferðisbrot, með því að hafa síðan afklæðst öllum fötum og farið upp í rúm til K sem var sofandi allsnakin í rúmi sínu í stofu íbúðarinnar og haft samræði við stúlkuna, sem sökum svefndrunga og ölvunar skynjaði ekki hvað gerst hafði fyrr en samfarirnar höfðu staðið nokkra stund. Taldist þetta varða við 196. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 40/1992.
3. Líkamsmeiðingar, með því að hafa eftir samfarirnar slegið K í andlitið með svokölluðum skalaskóm og aftan í vinstra hnéð með kuldaskóm, með þeim afleiðingum að stúlkan fékk glóðarauga kringum vinstra auga, talsvert mar og þrota í kinnbeininu og 5 sm eldrauðan þrymil og bólgu undir honum aftan á vinstra hné. Taldist þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940.
K krafðist skaðabóta að fjárhæð 500.000 kr., auk vaxta.
Þau M og K höfðu búið saman um rúmlega þriggja ára skeið en sambúð þeirra lauk í októ
M var sýknaður af ákæru um brot gegn 231. gr. almennra hegningarlaga með vísan til framburðar hans. Varðandi 2. ákærulið þótti ekki vera fram komin alveg fullnægjandi sönnun fyrir sekt ákærða og hann því sýknaður. Ákærði var hins vegar sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði hafði áður gerst sekur um hegningarlagabrot og þótti refsing hans með hliðsjón af sakarferli hæfilega ákveðin varðhald í 40 daga. Eftir atvikum þótti þó fært að fresta fullnustu refsingarinnar og láta hana falla niður að liðnum tveimur árum frá dómsuppkvaðningu, héldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegning
Í langflestum tilvikum er sakfellt fyrir minni háttar líkamsmeiðingar (1. mgr. 217. gr.), alls níu dómar. Í sjö tilvikum er um að ræða meiri háttar líkamsmeiðingar (brot gegn 1. mgr. 218. gr., fjögur tilvik, og brot gegn 2. mgr. 218. gr., þrjú tilvik). Í fjórum dómum er sakfellt fyrir nauðgun (194. gr.) og í einum dómi frelsissviptingu (1. mgr. 226. gr.). Fjórum sinnum er um að ræða húsbrot (231. gr.), þrisvar sinnum brot gegn áminningu lögreglunnar (1. mgr. 232. gr.) og einu sinni hótanir (233. gr.). Í einum dómi er svo sakfellt fyrir brennu (1. mgr., sbr. 2. mgr. 164. gr.) og í öðrum þjófnað (244. gr.).
B. Mál sem komu til Ríkissaksóknara á tímabilinu frá 1. júlí 1992 til 1. júlí 1997 en gengu ekki til dóms.
M. 1493.92. Brot gegn friðhelgi einkalífs.
M. 1767.92. Brot gegn friðhelgi einkalífs. Húsbrot.
71.93 Brot gegn friðhelgi einkalífs.
M. 91.93. Brot gegn friðhelgi einkalífs.
M. 162.93. Brot gegn friðhelgi einkalífs.
M. 193.93. Brot gegn friðhelgi einkalífs.
M. 223.93. Brot gegn friðhelgi einkalífs.
M. 275.93. Líkamsárás.
M. 444.93. Brot gegn friðhelgi einkalífs.
M. 613.93. Líkamsárás.
M. 954.93. Líkamsárás.
M. 1232.93. Brot gegn friðhelgi einkalífs.
M. 1304.93. Brot gegn friðhelgi einkalífs.
M. 1764.93. Húsbrot.
M. 544.94. Líkamsárás.
M. 956.94. Líkamsárásir.
M. 987.94. Líkamsárás.
M. 1165.94. Brot gegn friðhelgi einkalífs.
M. 1670.94. Brot á friðhelgi einkalífs.
M. 182.95. Líkamsárás.
M. 222.95. Brot gegn friðhelgi einkalífs. Hótanir.
M. 527.95. Nauðgun.
M. 536.95. Líkamsárás.
M. 873.95. Líkamsárás. Brot á friðhelgi einkalífs.
hafði ekki farið til læknis vegna áverka eftir árásir M, en vitni voru að áverkum hennar og rifnum fatnaði. Vegna ónæðisins var M veitt lögregluáminning sbr. 1. mgr. 232. gr. almennra hegningarlaga, en eins og málið lá fyrir var með vísan til 112. gr. laga um meðferð opinberra mála eigi krafist frekari aðgerða í því.
M 910.95. Kynferðisleg misneyting.
M. 85.96. Líkamsárás.
M. 88.96. Líkamsárás.
M. 1275.96. Brot gegn friðhelgi einkalífs. Húsbrot og hótanir.
M. 1756.96. Líkamsárás.
M. 249.97. Tilraun til nauðgunar.
M. 589.97. Brot gegn friðhelgi einkalífs. Hótanir.
M. 731.97. Líkamsárás.
Í flestum tilvikum var um að ræða meint brot gegn friðhelgi einkalífs (þrettán tilvik) og í ellefu tilvikum meintar líkamsmeiðingar, kynferðisbrot í tveimur tilvikum og húsbrot og eignaspjöll í þremur tilvikum. Eigi var krafist frekari aðgerða í tólf málum með vísan til 112. gr. laga um meðferð opinberra mála (sjá kafla II.B. hér að framan), fallið var frá saksókn með vísan til a- og/eða f-liðar 2. mgr. 113. gr. í átta málum og sex málum var lokið með lögreglu
IV. NÝMÆLI SEM NEFNDIN HEFUR SÉRSTAKLEGA TEKIÐ TIL ATHUGUNAR OG TELUR AÐ TAKA EIGI UPP Í REFSI- OG RÉTTAFARSLÖGGJÖF
A. Löglærðir talsmenn.
Á síðari árum hefur í auknum mæli verið horft til hagsmuna brotaþola við rannsókn og meðferð opinberra mála. Einkum hefur verið hugað að þolendum kynferðisbrota. Í samræmi við tillögur nauðgunarmálanefndar (1989) hefur verið komið á fót neyðarmóttöku fyrir þol
Á neyðarmóttökunni gefst brotaþola einnig kostur á að ráðfæra sig við löglærðan talsmann, sér að kostnaðarlausu. Ef til kæru kemur fylgir talsmaður brotaþola í gegnum kæruferlið, leiðbeinir honum um gerð bótakröfu og fylgir þeirri kröfu eftir fyrir dómi, ef þess er talin þörf, sbr. ákvæði 5. mgr. 172. gr. laga um meðferð opinberra mála. Mikil réttarbót er fólgin í því að brotaþoli skuli hafa aðgang að löglærðum talsmanni. Brotaþoli á þó ekki lögvarinn rétt til talsmanns, svo sem er annars staðar á Norðurlöndum, sbr. a–d-liði 107. gr. norskra réttarfarslaga um „fornærmedes rett til advokat“, sænsk sérlög um „målsägandebiträde“ og a–e-liði 741. gr. danskra réttarfarslaga um „advokatsbistand til den forurettede“.
Samkvæmt a–d-liðum 107. gr. norskra réttarfarslaga, nr. 25/1981, eins og þeim var breytt með lögum nr. 50/1994, eiga þolendur kynferðisbrota, samkvæmt ákvæðum er samsvara 194.–197. gr., 1. og 2. mgr. 200. gr., 201. og 202. gr. íslenskra hegningarlaga, rétt á að fá skipaðan löglærðan talsmann og er lögreglu skylt að kynna brotaþola þennan rétt. Að auki getur dómari:
„på begjæring oppnevne advokat for fornærmede hvis det er grunn til å tro at fornærmede som følge av handlingen får betydelig skade på legeme eller helbred og det anses å være behov for advokat.“
Talsmaður gætir réttar brotaþola við lögreglurannsókn málsins og meðferð þess fyrir dómi. Hann á rétt á að vera viðstaddur yfirheyrslur yfir kærða fyrir lögreglu og fyrir dómi, koma að spurningum við þær yfirheyrslur og mótmæla spurningum sem eru málinu óviðkomandi eða ótilhlýðilega framsettar. Þá skal talsmaður eiga færi á að tjá sig um réttarfarsatriði og rökstyðja og reifa bótakröfu.
Sænsk sérlög nr. 1988:609 um „målsägandebiträde“ geyma ákvæði um rýmri rétt brotaþola til talsmanns, en leiddur verður af norskum réttarfarslögum. Rétt til talsmanns eiga þolendur brota sem lýst er í 6. kafla sænskra hegningarlaga um kynferðisbrot, nema það sé sýnilega óþarft. Sama rétt eiga þolendur ránsbrota og brota skv. 3. og 4. kafla hegningarlaganna um brot gegn lífi og líkama, frjálsræði og friðhelgi einkalífs, ef þau brot varða fangelsi. Loks eiga þolendur annarra brota rétt til talsmanns, ef þau varða fangelsi og sérstök þörf þykir á að skipa brotaþola talsmann, með hliðsjón af högum hans og málsatvikum að öðru leyti. Talsmaður er skipaður af dómara og hefur hann svipað hlutverk og að norskum rétti.
Samkvæmt a–e-liðum 741. gr. danskra réttarfarslaga, eins og þeim var breytt með lögum nr. 349/1997, eiga þolendur brota er samsvara 106. gr. íslenskra hegningarlaga um brot gegn valdstjórninni rétt til talsmanns. Sama rétt eiga þolendur brota sem samsvara 194.–202. gr. um kynferðisbrot og 209. gr. um brot gegn blygðunarsemi, 211. gr., sbr. 20. gr., og 217.–220. gr. um brot gegn lífi og líkama, 225.–226. gr. um nauðung og frelsissviptingu og 252. gr. um rán. Einnig eiga þolendur brota skv. 123. gr. danskra hegningarlaga um vitnavernd rétt til talsmanns, en í íslenskum lögum er ekki samsvarandi ákvæði. Synja má um talsmann í málum vegna brota annarra en alvarlegra kynferðisbrota, sem samsvara brotum skv. 194. og 195. gr. íslenskra hegningarlaga, 196. gr. að hluta til, 200. og 201. gr., ef ekki er um alvarlegt brot að ræða og ekki þykir nauðsyn til skipunar talsmanns. Í greinargerð með lögum nr. 349/1997 kemur fram að meginreglan skuli vera sú að þolendur ofbeldis- og kynferðisbrota skuli eiga rétt á að fá skipaðan talsmann. Dómara skuli hins vegar vera heimilt að synja um skipun talsmanns í minni háttar málum, en þó aðeins í undantekningartilvikum, svo sem vegna slagsmála á öldurhúsum o.fl., ef þolandi hefur ekki orðið fyrir teljandi tjóni. Hlutverk talsmanna samkvæmt dönskum réttarfarslögum er svipað og lýst hefur verið hér að ofan.
Nefndin leggur til að í lög um meðferð opinberra mála verði tekið ákvæði um rétt brotaþola til að fá skipaðan löglærðan talsmann og telur að slíkt ákvæði mundi ótvírætt horfa til bættrar réttarstöðu þolenda heimilisofbeldis, sem og annarra þolenda afbrota. Samkvæmt því ákvæði eigi þolendur kynferðisbrota, skv. 194.–202. gr. almennra hegningar
B. Breyttar ákærureglur.
Eitt megineinkenna brota gegn friðhelgi einkalífs, skv. 228.–241. gr. almennra hegningar
Í heimilisofbeldismálum reynir oft á húsbrot, skv. 231. gr. laganna, ónæði eða ofsóknir, skv. 232. gr., og hótanir, skv. 233. gr. Velta má fyrir sér hvort heppilegt sé að tvö fyrrnefndu brotin skuli háð refsikröfu þess sem misgert er við. Ljóst er að í málum sem hér um ræðir er oft líklegra en ella að brotaþoli veigri sér við að kæra hinn brotlega til refsingar. Til þess geta legið margar ástæður, svo sem að sá sem fyrir broti verður sé fjárhagslega háður brotamanni eða óttist hann.
Ekki er að sjá að ákærureglum varðandi brot gegn friðhelgi einkalífs sé á annan hátt farið í löggjöf grannþjóða, sbr. 27. kafla danskra hegningarlaga um „freds- og ærekrænkelser“, 21. kafla norskra hegningarlaga um „forbrytelser mot den personlige frihet“, 4. kafla 11. gr. sænskra hegningarlaga um „hemfridsbrott“ og 24. kafla finnskra hegningarlaga um „frids
Við athugun réttarfarsreglna á þessu sviði verður þó að hafa í huga að meginreglan er að sérhver refsiverður verknaður skal sæta ákæru, sbr. 24. gr. almennra hegningarlaga og 111. gr. laga um meðferð opinberra mála.
Það er mat nefndarmanna að við lagasetningu á þessu sviði beri að varast að velta yfir á þolendur refsiverðrar háttsemi ábyrgð á því að þeir sem brot fremja sæti ákæru.
Samkvæmt 2. mgr. 217. gr. skal mál vegna minni háttar líkamsmeiðinga skv. 1. mgr. greinarinnar „eigi höfðað nema almenningshagsmunir krefjist þess“. Farið var með minni háttar líkamsmeiðingar sem einkarefsimál hér á landi fram til þess að 217. gr. var breytt með lögum nr. 20/1981. Segir í athugasemdum við frumvarp er varð að þeim lögum að ekki þyki eðlilegir saksóknarhættir í refsimáli út af líkamsárás að einstaklingur höfði mál og samrýmist það vart þeirra tíma viðhorfum í refsirétti og opinberu réttarfari. Lagabreytingin er mjög í samræmi við réttarþróun á Norðurlöndum þar sem ákærureglum hefur í auknum mæli verið breytt í þá veru að mál vegna líkamsmeiðinga sæti skilyrðislausri opinberri ákæru. Ætla má að við samningu ákvæða almennra hegningarlaga um líkamsmeiðingar hafi verið horft nokkuð til samsvarandi ákvæða í dönskum hegningarlögum. Dönsk líkamsárásarákvæði hafa tekið miklum breytingum á síðari árum. Ákvæði 242. gr. danskra hegningarlaga, sem samsvarar 217. gr. íslenskra hegningarlaga, geymir t.d. ekki fyrirvara um að mál skuli ekki höfðað nema almenningshagsmunir krefjist.
Ákvæði 217. gr. er eitt af þeim hegningarlagaákvæðum sem oft reynir á varðandi heimilis
Það er álit nefndarmanna að óheppilegt sé að slík heimild sé sérstaklega tengd ákveðnum brotaflokki, svo sem er um minni háttar líkamsmeiðingar, og að sú tilhögun geti jafnvel orð
C. Refsiákvörðun.
Samkvæmt 205. gr. almennra hegningarlaga er dómara heimilt að fella niður refsingu vegna kynferðisbrota skv. 194.–199., 202. og 204. gr. laganna „ef karl og kona, er kynferðismökin hafa gerst í milli, hafa síðar gengið að eigast eða tekið upp óvígða sambúð eða, ef þau voru þá í hjónabandi eða óvígðri sambúð, hafa eftir það tekið upp eða haldið áfram sambúð.“ Velta má fyrir sér réttmæti þessarar refsibrottfallsheimildar.
Í því sambandi má vísa til tilhögunar 196. gr. almennra hegningarlaga. Brot sem þar um ræðir var bundið við tilvik utan hjónabands fyrir gildistöku laga nr. 40/1992. Í frumvarpi til þeirra laga var gert ráð fyrir óbreyttri tilhögun að þessu leyti, þó þannig að fyrirvarinn tæki til hjónabands og óvígðrar sambúðar. Við þingmeðferð lagði meiri hluti allsherjarnefndar hins vegar til að frumvarpinu yrði breytt þannig að þeir sem væru í hjónabandi eða óvígðri sambúð nytu einnig refsiverndar þegar slík misneyting ætti sér stað. Frumvarpið var samþykkt á Alþingi með þeim breytingum.
Samkvæmt 1. tölul. 3. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga er dómara heimilt að fresta skil
D. Nálgunarbann.
Hluti af þeirri viðleitni sem víða hefur verið sýnd á undanförnum árum til að styrkja stöðu fórnarlamba ofbeldis og veita þeim aukna vernd er lögfesting ákvæða um nálgunarbann. Tilgangur nálgunarbanns er ekki sá að refsa fyrir framin afbrot heldur að veita fórnarlambi ofbeldis eða ofsókna skjóta vernd og fyrirbyggja frekari árásir. Hafa ber í huga að ekki gilda sömu lögmál um árásir ókunnugra og árásir fjölskyldumeðlima. Þegar um heimilisofbeldi er að ræða er mun meiri hætta á áframhaldandi ofbeldi vegna hins greiða aðgangs sem hinn brotlegi hefur að fórnarlambinu. Því nægja ekki hin hefðbundnu úrræði refsivörslukerfisins og þörf er á skjótari viðbrögðum til verndar brotaþolum í slíkum málum.
Úrræðið nálgunarbann hefur ekki verið lögfest hér á landi. Hins vegar er í almennum hegningarlögum að finna ákvæði um lögregluáminningu sem hefur nokkurn skyldleika við nálgunarbann. Ákvæði 1. mgr. 232. gr. almennra hegningarlaga hljóðar svo:
„Ef maður, þrátt fyrir áminningu lögreglunnar, raskar friði annars manns með því að ásækja hann, ofsækja hann með bréfum eða ónáða hann á annan svipaðan hátt, þar á meðal með símhringingum, þá varðar það sekt
Ákvæðið veitir lögreglunni ekki beinlínis heimild til að veita áminningar heldur er gert ráð fyrir að lögreglan hafi almennt slíka ólögfesta heimild. Hins vegar eru ekki ákvæði um form og efni lögreluáminninga í lögum.
Í áminningu lögreglunnar felst fyrirskipun til þess sem áminntur er um að ásækja ekki eða áreita á neinn hátt þann sem vernda á. Efnislega felst í slíkum fyrirmælum bann við að nálgast viðkomandi einstakling á þann hátt að telja megi til áreitni. Sé brotið gegn þessum fyrirmælum liggur refsing við.
Nokkrir dómar hafa fallið þar sem dæmt er til refsingar fyrir brot gegn 1. mgr. 232. gr. almennra hegningarlaga. Úrræðinu mun þó ekki mikið beitt enda reglurnar að mörgu leyti óljósar og sjálf heimildin til áminningar ólögfest. Samkvæmt upplýsingum frá lögrelunni í Reykjavík eru aðeins veittar örfáar áminningar á ári og þá aðeins í grófustu ofsóknartilvikun
Þess skal einnig getið að skv. 2. tölul. 3. mgr. 57. gr. almennra heginingarlaga má binda frestun á ákvörðun eða fullnustu refsingar (skilorðsdóm) því skilyrði að aðili hlíti fyrirmælum umsjónarmanns um dvalarstað, menntun, vinnu, umgengni við aðra menn og notkun tóm
Danmörk.
„Den, der krænker nogens fred ved trods forud af politiet given advarsel at trænge ind på ham, forfølge ham med skriftlige henvendelser eller på lignende måde forulempe ham, straffes med bøde eller hæfte eller under skærpende omstændigheder med fængsel indtil 6 måneder. En af politiet meddelt advarsel har gyldighed for 5 år.“
Eins og á Íslandi eru heimildir lögreglu til áminningar ólögfestar. Danska dómsmálaráðu
Noregur.
„Den som har begått en straffbar handling, kan ved dom forbys å oppholde seg i bestemte områder hvis handlingen viser at lovbryterens opphold der kan være til særlig fare eller plage for andre.
Forhørsretten i den rettskrets forbudet gjelder, kan på begjæring fra den domfelte eller påtalemyndigheten endre eller oppheve forbudet.
Forbud som åpenbart ikke lenger er nødvendig, kan oppheves av statsadvokaten.“
Samkvæmt greininni má með dómi banna manni að halda sig á ákveðnum afmörkuðum svæðum. Þetta verður þó aðeins gert í tengslum við önnur viðurlög vegna refsiverðs verkn
Í a-lið 3. mgr. 53. gr. norsku hegningarlaganna er að finna ákvæði varðandi skilorðsdóma og skilorðsbundna ákærufrestun:
„Retten kan også sette andre vilkår for utsettelsen, bl a:
a) at den domfelte overholder bestemmelser om oppholdssted, arbeid, utdanning eller samkvem med bestemte personer.“
Svipað ákvæði er einnig að finna í fangelsislögum varðandi reynslulausn. Ákvæði þessi hafa þó mun minni þýðingu en 33. gr. hegningarlaganna.
Með lögum nr. 50/1994 var enn fremur nýjum kafla bætt inn í réttarfarslög, nr. 25/1981. Nálgunarbann er því nú einnig til sem sjálfstætt úrræði í norskum rétti, þ.e. án tengsla við viðurlög vegna refsiverðs verknaðar. Ákvæði 222. gr. a í réttarfarslögunum hljóðar svo:
„Påtalemyndigheten kan forby en person å oppholde seg på et bestemt sted, forfølge, besøke eller på annet vis kontakte en annen person, hvis det på grunn av særlige forhold antas å foreligge risiko for at den forbudet vil rette seg mot, ellers ville begå en straffbar handling overfor, forfølge eller på annet vis krenke den andres fred. Forbudet kan ilegges på begjæring av den forbudet skal beskytte, eller når det finnes påkrevet av almenne hensyn. Forbudet skal gjelde for en bestemt tid, høyst ett år av gangen.
Påtalemyndigheten må snarest mulig og senest 3 dager etter beslutningen bringe saken inn for forhørsretten som avgjør spørsmålet ved kjennelse. §§ 174, 175 første ledd, 177, 181 annet ledd og 184 gjelder tilsvarende så langt de passer. Spørsmålet om forbudet kan også bringes inn for retten på begjæring av den forbudet skal beskytte.“
Með ákvæðinu er ákæruvaldinu veitt almenn heimild til að banna manni að halda sig á ákveðnum stað, ofsækja, ásækja eða hafa á annan hátt samband við annan mann. Skilyrði fyrir því að beita þessu úrræði er að á grundvelli sérstakra aðstæðna í tilteknu máli þyki hætta á að sá sem bannið beinist að fremji refsiverðan verknað gegn, ofsæki eða raski á annan hátt friði þess sem vernda á. Þess er ekki krafist að refsiverður verknaður hafi þegar verið framinn og úrræðinu má beita þó verknaðurinn sem hætta þykir á að verði framinn sé ekki refsiverður í sjálfu sér. Nægilegt er að hætta sé á friðarröskun.
Ekki er það skilyrði að sá sem vernda skal krefjist banns. Til dæmis er unnt að leggja á bann í tilvikum þar sem viðkomandi er háður árásarmanninum á einhvern hátt.
Tilvísun 2. málsl. 2. mgr. 222. gr. a í önnur ákvæði laganna varðar aðallega málsmeðferð en felur einnig í sér að ekki skuli leggja á bann ef það er óhentugt í tilteknu máli og að bann megi ekki vera víðtækara en þörf er á hverju sinni. Enda þótt ákvæðið sé í lögum um meðferð opinberra mála þar nálgunarbann þó ekki að vera í tengslum við rannsókn sakamáls eða á annan hátt vera afleiðing af refsiverðum verknaði. Það gildir hins vegar um önnur þvingunar
Ákveðið var að fela ákæruvaldinu að leggja nálgunarbann þótt um væri að ræða langvar
Nálgunarbannið skv. 222. gr. a gildir í ákveðinn tíma, lengst eitt ár í senn. Brot á banninu varða sömu refsingu og brot á banni skv. 33. gr. hegningarlaganna.
Svíþjóð.
Í 1. mgr. 1. gr. laganna er nálgunarbann skilgreint sem bann við því að ákveðinn maður heimsæki eða hafi á annan hátt samband við annan mann eða veiti honum eftirför. Ef slíkt bann nægir ekki heimilar 2. gr. enn víðtækara nálgunarbann. Hinum brotlega er þá bannað að koma nálægt heimili þess sem vernda á, vinnustað eða öðrum dvalarstað. Skv. 4. gr. er nálgunarbann veitt í ákveðinn tíma, lengst eitt ár, með möguleika á framlengingu í eitt ár hverju sinni.
Skilyrði nálgunarbanns er að á grundvelli sérstakra aðstæðna þyki hætta á að sá sem bannið beinist að fremji afbrot gegn, veiti eftirför eða ofsæki á annan hátt þann sem bannið á að vernda, sbr. 2. mgr. 1. gr. Við matið á hættunni skal sérstaklega athuga hvort sá sem bannið beinist gegn hafi framið afbrot er beinist að lífi, heilsu, frelsi eða friðhelgi einkalífs þess sem vernda á. Þess er ekki krafist að unnt sé að sanna að brot hafi þegar verið framið. Grunnskilyrðið er að hætta þyki á ofsóknum vegna sérstakra aðstæðna.
Ákæruvaldið leggur á nálgunarbann að kröfu þess sem vernda á eða annars þegar tilefni þykir til, sbr. 7. gr. Í 7.–13. gr. er að finna ákvæði um málsmeðferð ákæruvaldsins
Dómstólar taka ákvörðun ákæruvaldsins til endurskoðunar að kröfu þess sem bannið beinist gegn eða þess sem banninu er ætlað að vernda samkvæmt nánari reglum í 14.–22. gr. Saksókn
Samkvæmt 24. gr. varða brot á nálgunarbanni sektum eða fangelsi í allt að eitt ár. Ekki er þó refsað fyrir smávægileg brot.
Nefndin telur nauðsynlegt að settar verði reglur sem geri kleift að vernda þolendur heimilisofbeldis. Með því að beita nálgunarbanni má koma í veg fyrir heimilisofbeldi og bregðast við því í þeim tilvikum sem því hefur verið beitt. Markmiðið með nálgunarbanni er eins og áður hefur komið fram að vernda fórnarlambið og fyrirbyggja frekara ofbeldi. Nefndin telur brýna þörf á slíku úrræði í íslenskum lögum, enda mundi það ótvírætt bæta réttarstöðu þolenda heimilisofbeldis og annarra þolenda ofbeldis og ofsókna. Nefndin legg
Ákvæði um nálgunarbann mætti fella inn í VII. kafla almennra hegningarlaga. Samkvæmt því ákvæði yrði með dómi unnt að banna þeim sem framið hefur refsiverðan verknað að halda sig á tilteknum svæðum ef sýnt þætti vegna verknaðarins að nærvera hans þar gæti haft í för með sér sérstaka hættu eða óþægindi fyrir aðra. Nálgunarbannið yrði ótímabundið og brot gegn því mundi varða fangelsi allt að sex mánuðum og allt að tveimur árum ef um ítrekað brot væri að ræða.
Nefndin telur einnig brýna þörf á lagaákvæði er heimili notkun nálgunarbanns sem bráðabirgðaúrræðis er beita mætti til þess að koma í veg fyrir refsiverðan verknað. Slíkt ákvæði á heima í lögum um meðferð opinberra mála. Um meðferð beiðna færi þá eftir regl
Nefndin telur rétt að 1. mgr. 232. gr. hegningarlaga standi áfram í lögum. Hins vegar þyrfti að styrkja úrræðið með nánari reglum um áminningar lögreglu þar sem fram kæmi t.d. hver veiti áminningar, hvernig og af hvaða tilefni.
HEIMILDASKRÁ
Jónatan Þórmundsson, Ofsóknir og hótanir, Tímarit lögfræðinga, 1989, bls. 198–203.
NOU 1992:23: Ny straffelov — alminnelige bestemmelser, Straffelovkommisjonens delutredning V, Ósló, 1992.
Lag 1988 om besöksförbud, Nytt Juridiskt Arkiv, 1988, bls. 321–343.
Ot prp nr. 33 (1993–94): Om lov om endringer i straffeprosessloven mv (styrkning av kriminalitetsofres stilling), Justis- og politidepartementet, Ólsó, 1994.
Skýrsla nauðgunarmálanefndar, dómsmálaráðuneytið, Reykjavík, 1989.
Skýrsla dómsmálaráðherra um orsakir, umfang og afleiðingar heimilisofbeldis og annars ofbeldis gegn konum og börnum, dómsmálaráðuneytið, Reykjavík, 1997.
Smearman, Claire Ann, At the crossroads: Domestic violence and legal reform in Iceland, Úlfljótur, 1996, bls. 275.
Una Björk Ómarsdóttir, Nálgunarbann — kandidatsritgerð, Reykjavík, 1996.