Ferill 615. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–1998.
Nr. 15/122.
Þingskjal 1470 — 615. mál.
Þingsályktun
um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 1998.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirtalda samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 1998 sem gerðir voru í Ósló 28. október 1997:
1. Sameiginlega bókun um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 1998, ásamt bókun um sérstakar verndunarráðstafanir með tilliti til stjórnunar veiða úr stofninum.
2. Samning milli Íslands og Færeyja um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 1998.
3. Samkomulag milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands, efnahagslögsögu Noregs og fiskveiðilögsögu Jan Mayen á árinu 1998.
4. Samkomulag milli Íslands og Rússneska sambandsríkisins um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 1998.
Samþykkt á Alþingi 2. júní 1998.