Ferill 394. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1516 – 394. mál.



Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak, nr. 63/1969, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 4. júní.)



1. gr.

    7. gr. laganna orðast svo:
    Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins skal tryggja að þjónusta við viðskiptavini sé vönduð, sem og upplýsingar sem gefnar eru viðskiptavinum um þá vöru sem á boðstólum er, allt eftir því sem samrýmist lögum þessum, áfengislögum og öðrum lagafyrirmælum og reglum á hverjum tíma.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.