Forseti (Ragnar Arnalds):
Borist hefur bréf frá þingflokki sjálfstæðismanna, svo\-hljóð\-andi:
,,Reykjavík, 2. febrúar 1999.
Breytingar á skipan alþingismanna í þingnefndir.
Það tilkynnist hér með að eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á skipan alþingismanna Sjálfstfl. í þingnefndir:
Félagsmálanefnd: Í stað Kristjáns Pálssonar tekur sæti í nefndinni Katrín Fjeldsted.
Iðnaðarnefnd: Í stað Árna Ragnars Árnasonar tekur sæti í nefndinni Katrín Fjeldsted.
Landbúnaðarnefnd: Í stað Árna M. Mathiesens tekur sæti í nefndinni Katrín Fjeldsted.
Sérnefnd um stjórnarskrármál: Sólveig Pétursdóttir tekur sæti Friðriks Sophussonar.
Virðingarfyllst,
Sigríður Anna Þórðardóttir.``