Seðlabanki Íslands

Þriðjudaginn 16. febrúar 1999, kl. 17:06:21 (3701)

1999-02-16 17:06:21# 123. lþ. 66.50 fundur 465. mál: #A Seðlabanki Íslands# frv., Flm. ÁRJ (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur, 123. lþ.

[17:06]

Flm. (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 36 5. maí 1986. Frumvarpið, sem er á þskj. 767 og er 465. mál þingsins, hljóðar svo, með leyfi forseta:

,,1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 22. gr. laganna:

a. 1. mgr. fellur brott.

b. 2. mgr. hljóðar svo: Bankastjóri Seðlabankans stýrir daglegum rekstri bankans. Ráðherra skipar bankastjóra að fengnum tillögum bankaráðs. Bankastjóri skal skipaður til fimm ára í senn, en þó skal gæta reglna um hámarksaldur starfsmanna ríkisins.

2. gr.

Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Þar til skipunartíma annars af tveimur núverandi bankastjórum lýkur skulu bankastjórar vera tveir og þeir skipa bankastjórn. Skulu þeir koma sér saman um formennsku í bankastjórninni.

3. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.``

Nú hefur stóll bankastjóra við Seðlabanka Íslands verið laus um margra mánaða skeið án þess að staðan hafi verið auglýst. Hefur rekstur bankans síður en svo gengið verr þótt eigi sé fyllt lögmælt tala bankastjóra. Það hlýtur líka að vera fjarstæða að hér á landi þurfi fleiri en einn bankastjóra til þess að stýra daglegum rekstri Seðlabankans og má til samanburðar nefna að í Bandaríkjunum og í Bretlandi nægir einn bankastjóri til þess að stýra margfalt umfangsmeiri rekstri, enda hefur það einnig verið þróunin í nágrannalöndum okkar að bankastjórum hefur verið fækkað og þar er einn aðalbankastjóri þar sem slíkur rekstur hefur verið tekinn upp. Því er hér lagt til að sú bankastjórastaða sem nú er laus verði ekki fyllt og fækkað verði um einn bankastjóra þegar skipunartími seðlabankastjóra rennur næst út, en þeir eru nú skipaðir til fimm ára eins og kunnugt er.

Í 1. mgr. 22. gr. laga um Seðlabanka Íslands er fjallað um bankastjórn þriggja bankastjóra. Ákvæðið hefur ekki þýðingu þegar bankastjóri er orðinn einn, en um bráðabirgðaástand er fjallað í 2. gr. frumvarpsins. Lögð er til sú breyting á 2. mgr. 22. gr. að bankastjóri skuli vera einn og lagt er til að hann verði skipaður með sama hætti og verið hefur.

Ákvæði til bráðabirgða er ætlað að taka á því ástandi sem nú er, þ.e. að við bankann starfa tveir bankastjórar. Þeir hafa hins vegar verið skipaðir til fimm ára og er því einfalt að koma tölu bankastjóra í endanlegt horf þegar skipunartími seðlabankastjóra rennur næst út. Nokkrar umræður urðu um það á síðasta ári hvort ákvæði um hámarksaldur starfsmanna ríkisins ætti við um seðlabankastjóra og því er það ótvírætt tekið fram að svo sé eins og niðurstaðan varð í umræddu tilviki. Þess ber þá að gæta við skipun bankastjóra þannig að 68 ára einstaklingur yrði aðeins skipaður til 70 ára aldurs að óbreyttum hámarksaldri starfsmanna.

Hér er sem sagt lagt til að það verði einn bankastjóri við Seðlabanka Íslands. Það er eins og þróunin hefur verið í öðrum bönkum. Nú er orðinn einn bankastjóri við Landsbankann. Það er einn bankastjóri hjá Íslandsbanka og án efa verður það þróunin einnig í öðrum bönkum, t.d. í Búnaðarbankanum, þótt það sé ekki orðið enn þá.

Herra forseti. Ég legg til að þessu máli verði að umræðu lokinni vísað til 2. umr. og til efh.- og viðskn.