Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér, með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis, að óska þess að 1. varaþm. Sjálfstfl. í Norðurl. e., Svanhildur Árnadóttir bæjarfulltrúi, Dalvík, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Halldór Blöndal, 2. þm. Norðurl. e.``
Svanhildur Árnadóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa.