Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
,,Þar sem Páll Pétursson, 1. þm. Norðurl. v., getur ekki vegna veikinda sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér, með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis, að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Norðurl. v., Elín R. Líndal bóndi, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Formaður þingflokks Framsfl.,
Valgerður Sverrisdóttir.``
Kjörbréf Elínar Líndal hefur verið samþykkt. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa.