1999-03-11 03:57:17# 123. lþ. 84.30 fundur 526. mál: #A hollustuhættir og mengunarvarnir# (gjaldskrá sveitarfélaga) frv. 59/1999, RG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 84. fundur, 123. lþ.

[27:57]

Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Formaðurinn hefur misskilið mig. Ég var ekki að spyrja um lögfræðilega þáttinn á uppsetningu brtt. Ég var að spyrja um málsmeðferð í nefnd og fyrir það svarar enginn lögfræðingur sem skoðar brtt. Ég bar fram þá spurningu hvort samráð hafi verið haft um þessa breytingu við umsagnaraðila sem væntanlega hafa fengið málið til umsagnar áður en því var breytt.