Áhrif veiðarfæra á vistkerfi hafsbotnsins

Mánudaginn 12. október 1998, kl. 15:44:18 (285)

1998-10-12 15:44:18# 123. lþ. 7.1 fundur 46#B áhrif veiðarfæra á vistkerfi hafsbotnsins# (óundirbúin fsp.), sjútvrh.
[prenta uppsett í dálka] 7. fundur, 123. lþ.

[15:44]

Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Það er rétt hjá hv. þm. að í fjárlagafrv. eru ekki gerðar ráðstafanir sérstakar til þess að mæta þessari ályktun Alþingis. Hins vegar hefur Hafrannsóknastofnun fengið fjármagn til þess að auka rannsóknir og athuganir á þessu sviði eftir öðrum leiðum.