Áform Norsk Hydro um byggingu álvers

Mánudaginn 12. október 1998, kl. 15:51:06 (290)

1998-10-12 15:51:06# 123. lþ. 7.1 fundur 47#B áform Norsk Hydro um byggingu álvers# (óundirbúin fsp.), ArnbS
[prenta uppsett í dálka] 7. fundur, 123. lþ.

[15:51]

Arnbjörg Sveinsdóttir:

Hæstv. forseti. Það er rétt að til stóð að beina þessari fyrirspurn til iðnrh. og ég þakka hæstv. utanrrh. fyrir að svara. Ég tel að það sé mjög óheppilegt að þessar væntingar um stóriðju í kjördæminu hangi í loftinu þannig að fólk hugi ekki að öðrum kostum. Og þegar við fáum núna þessar nýjustu tölur um íbúaþróun hlýtur fólki að bregða allverulega og við hljótum að verða að líta til þess að eitthvað þurfi að gera. Ef menn ætla að hanga yfir þessum viðræðum við Norsk Hydro mjög lengi til viðbótar þegar jafnframt berast fréttir um að þarna sé jafnvel ekki mjög traustur fjárhagur á bak við, þegar órói er svo mikill á hlutabréfamörkuðum og hlutabréf í þessu einstaka fyrirtæki hafa fallið um 20% á skömmum tíma, hljóta þetta að vera atriði sem menn verða að skoða mjög alvarlega.