Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):
Herra forseti. Eins og fram kemur í fskj. III með þessu frv. er gert ráð fyrir því að handvirka tilkynningarskyldan verði rekin í allt að þrjú ár samhliða sjálfvirku tilkynningarskyldunni. Það hygg ég að svari í rauninni því sem hv. þm. var að tala um.