Pétur H. Blöndal:
Herra forseti. Margt fólk hefur þá lífssýn að betra sé að einstaklingar fari með eignir en opinberir aðilar eða aðilar sem eiga ekki eignirnar og hafa ekki hagsmuni af eignunum. Í samræmi við þessa lífssýn er hér með lagt til að sjóðfélagar Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda verði formlega lýstir eigendur hans enda vandséð hverjir aðrir eigi þetta mikla fé.