Tómas Ingi Olrich (andsvar):
Herra forseti. Ég reikna með því að hv. þm. hafi getað hlýtt á ræðu mína. Ég vitnaði þar sérstaklega í ákveðin ummæli hennar og ákveðna tilvitnun hennar sem hún fór með hér í gær. Sú tilvitnun fjallaði annars vegar um samanburð á vísindarannsóknum á mönnum eða dýrum og hins vegar á því hvernig grunnurinn á að notast. Þetta er ekki sambærilegt og á ekki að vera sambærilegt og er ekki samboðið þingmanninum að nota.