Hjálmar Jónsson (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka fyrir þetta andsvar, þó það að vísu skýrði ekkert nýtt fyrir mér en e.t.v. hefur það verið óskýrt í máli mínu.
Ég bendi á og það er gott að það hafi verið upplýst hér frekar að mjög eindregnar og góðar varúðarráðstafanir séu í gildi gagnvart þessari skráningu. Eftir stendur að samt sem áður er þessi skráning persónuskráning. Ég bendi á að þær varúðarráðstafanir sem fyrirhugað er að gera gagnvart gagnagrunnsfrv. á heilbrigðissviði eru sterkari og öruggari en þessar.