Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Við erum frumkvöðlar á þessu sviði. Í þessum grunni eru ópersónugreinanlegar upplýsingar. Það hefur margsinnis komið fram. Þegar kemur að erfðaupplýsingum þarf upplýst samþykki. Það þarf upplýst samþykki fyrir erfðaupplýsingum sem er í öðrum grunni. Það held ég að hv. þm. hljóti að vita.