Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 17:43:03 (2015)

1998-12-10 17:43:03# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, ÁRJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[17:43]

Ásta R. Jóhannesdóttir:

Herra forseti. Það er ljóst að þetta mál er enn í vinnslu. Það fer til heilbr.- og trn. að lokinni umræðunni og þess vegna tel ég ekki ástæðu til að vísa málinu frá heldur láta reyna á það hvað kemur út úr frekari vinnslu í nefndinni. Reyndar hefur það komið fram að einkarétturinn brýtur í bága við a.m.k. fjögur ákvæði í EES-samningnum en engu að síður munum við láta reyna á það hvaða breytingar nást fram í nefndinni við frekari vinnslu. Ég greiði ekki atkvæði.