Guðný Guðbjörnsdóttir:
Herra forseti. Hér og í 5. gr. frv. er kveðið á um einkarétt sérleyfishafans til allt að 12 ára. Þessi ráðstöfun er á skjön við samkeppnisreglur EES-samningsins, heilbrigða samkeppni vísindasamfélagsins og stangast á við reglur um jafnræði og atvinnufrelsi. Þetta fyrirkomulag mun kalla á mikil málaferli. Ég greiði því atkvæði gegn báðum þessum greinum.