Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 18:27:51 (2049)

1998-12-10 18:27:51# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, SF (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[18:27]

Siv Friðleifsdóttir:

Herra forseti. Formaður heilbr.- og trn. hv. þm. Össur Skarphéðinsson hefur lagt megináherslu á tvö atriði í þessu gagnagrunnsfrv., þ.e. hv. þm. er andsnúinn einkaleyfinu og andsnúinn þessari aðgengisnefnd sem við erum að greiða atkvæði um. Ég vil því koma því á framfæri hér að við drögum einmitt þessa tillögu til baka til að ná meiri sátt um þetta mál en ég greiði atkvæði með þessari tillögu eins og hún liggur fyrir en þetta verður skoðað í nefnd á milli 2. og 3. umr.