Sólveig Pétursdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Bara örstutt út af orðum hv. þm. Hjörleifs Guttormssonar. Ég fagna því að hann skuli viðurkenna það hér að erfðafræðiupplýsingar hafi verið í umræðunni allan tímann í þessu máli og tengdar því. Við í meiri hlutanum töldum hins vegar að þetta væri óskýrt í frv. og þess vegna leggjum við til þessar brtt.