Forseti (Ragnar Arnalds):
Eins og hér hefur komið fram var haldinn fundur með formönnum þingflokka og forseta fyrr í kvöld. Ekki náðist samkomulag á þeim fundi en forseti leyfir sér að vona að viðræðum hafi þar með ekki verið slitið og að frekari viðræður eigi sér stað um málsmeðferð og þinghaldið. En á þessu stigi verður ekkert fullyrt um það hvenær fundi lýkur í kvöld.