Margrét Frímannsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Í dag er óheimilt að búa til og viðhalda einum miðlægum gagnagrunni um erfðaupplýsingar og hér gilda engin lög eða reglur um meðferð slíkra upplýsinga. Telur hv. þm. ekki þörf á að gengið sé frá slíkri löggjöf áður en menn fara að nota erfðaupplýsingar í öðrum tilgangi en upplýst samþykki sjúklings liggur fyrir um?