Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 17. desember 1998, kl. 11:33:22 (2464)

1998-12-17 11:33:22# 123. lþ. 44.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, TIO (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 123. lþ.

[11:33]

Tómas Ingi Olrich:

Herra forseti. Hér er að ljúka afgreiðslu í miklum ágreiningi um eitt stærsta mál þjóðarinnar. Það er bjargföst trú mín að með þessu máli verði lagður hornsteinn að miklum framförum á sviði heilbrigðisþjónustu og vísinda. Því segi ég já.