Fjáraukalög 1997

Fimmtudaginn 17. desember 1998, kl. 12:06:15 (2482)

1998-12-17 12:06:15# 123. lþ. 44.11 fundur 3. mál: #A fjáraukalög 1997# (niðurstöðutölur ríkissjóðs) frv. 166/1998, KH
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 123. lþ.

[12:06]

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Hér er um eins konar afgreiðslufrv. að ræða og verið að loka fjárlagadæminu fyrir árið 1997. Við sem skipum minni hluta fjárln. skrifum undir þetta álit með fyrirvara, ekki af þeirri ástæðu að við höfum neitt sérstakt við þessa afgreiðslu að athuga. En það eru að sjálfsögðu stjórnarflokkarnir sem bera ábyrgð á þessu dæmi í heild og þess vegna höfum við þennan fyrirvara.