Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um heimild fyrir ríkisstjórnina til að auka hlutafé Íslands í Norræna fjárfestingarbankanum og hækka útlánaramma vegna norrænna fjárfestingarlána til verkefna utan Norðurlanda. Þetta er að sjálfsögðu frá efh.- og viðskn.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bolla Þór Bollason frá fjmrn. og leitaði einnig eftir umsögn frá Verðbréfaþingi Íslands.
Nefndin leggur til að þetta frv. verði samþykkt.