Svavar Gestsson (um fundarstjórn):
Herra forseti. Ég vil taka undir þær óskir um að hlé verði gert á þessum fundi í nokkrar mínútur í viðbót til þess að menn geti skipulagt þingstörfin aðeins og ég vil upplýsa forseta um að engar viðræður eru í gangi um þinghaldið eins og er þannig að það er misskilningur að verið sé að þreifa á einhverjum lausnum af nokkru tagi. Ég mælist því til þess að gert verði hlé á fundinum þannig að hægt sé að ákveða hvaða mál á að taka fyrir. Það er auðvitað alveg óþolandi í sambandi við þetta mál um Fjárfestingarbanka atvinnulífsins að verið sé að skjóta því inn á milli af og til eins og uppfyllingarefni eins og mér sýnist vera ætlunin að gera núna.