Forseti (Guðni Ágústsson):
Í dag kl. 4 síðdegis fer fram umræða utan dagskrár um útboð á rekstri hjúkrunarheimilis fyrir aldraða. Málshefjandi er Svavar Gestsson. Heilbrrh., Ingibjörg Pálmadóttir, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.
Þá vill forseti tilkynna að síðar í dag fara fram atkvæðagreiðslur.