Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. og brtt. frá meiri hluta efh.- og viðskn. vegna frv. til laga um breytingar á lögum um bifreiðargjald, lögum um fjáröflun til vegagerðar og frv. til laga um vörugjald af ökutækjum.
Þessi brtt. er í nokkrum liðum og allítarleg og kemur fram á þskj. 559. Nefndin hefur fjallað mikið um málið og sent frv. víða til umsagnar. Listi yfir umsagnaraðila sem komu til fundar við nefndina er á þskj. 557. Yfirlit yfir brtt. og rökstuðninginn með þeim kemur fram á þskj. 559 og 557. Ég mun ekki gera frekari grein fyrir því sem þar stendur.