Ferill 318. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 385  —  318. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um námskrárgerð.

Frá Svanfríði Jónasdóttur.



     1.      Hvernig miðar gerð nýrra námskráa fyrir framhaldsskóla og hvenær er gert ráð fyrir að þær taki gildi?
     2.      Er miðað við styttingu framhaldsskólans í þrjú ár við gerð nýrra námskráa?
     3.      Hefur verið lagt mat á hvernig kostnaður við rekstur framhaldsskóla breytist við styttingu skólans í þrjú ár? Ef svo er, hver er meginniðurstaðan?