Ferill 525. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 843  —  525. mál.




Frumvarp til laga



um breyting á þinglýsingalögum, nr. 39/1978.

(Lagt fyrir Alþingi á 123. löggjafarþingi 1998–99.)



1. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:
     a.      Á eftir fyrri málslið 1. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Sama gildir um skjöl sem afhent eru til aflýsingar þar sem dagbók er haldin í tölvu.
     b.      2. mgr. orðast svo:
                  Nú er afhent skjal til þinglýsingar og skal þá vísa því frá ef eitthvert af eftirtöldum atriðum á við:
              a.      skjal er afhent í röngu umdæmi,
              b.      fasteign er ekki skráð í þinglýsingabók,
              c.      stofnskjal landeignar er ekki forskráð í Landskrá fasteigna samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna,
              d.      ekki er getið fastanúmers fasteignar,
              e.      afmörkun lands eða lóðar er ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr.,
              f.      ekki er ótvírætt við hvaða eign skjal á eða hvert efni þess er að öðru leyti,
              g.      skjalið skortir undirritun útgefanda og vitundarvotta eða annarra þeirra er skjal geta staðfest, sbr. 22. gr., sé þessa þörf,
              h.      skjal er aðeins afhent í einu eintaki eða samrit eða endurrit er ekki ritað á löggiltan þinglýsingapappír.

2. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna, sbr. lög 63/1988:
     a.      2. mgr. orðast svo:
                  Bækur þessar skulu tölvufærðar eftir nánari ákvörðun ráðherra í reglugerð. Þar skal mælt fyrir um öryggisráðstafanir og vistun þinglýsingargagna. Skal vörslu gagna hagað þannig að ráðuneytið hafi fullt og óskorað forræði allra gagna. Um tiltekinn tíma getur dómsmálaráðuneytið heimilað þinglýsingarstjórum að nota eldri þinglýsingabækur, lausblaðabækur eða spjöld.
     b.      4. og 5. mgr. falla brott.

3. gr.


    Við 1. mgr. 9. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Við þinglýsingu í tölvukerfi er stöðu skjals breytt úr „dagbókarfært“ í „þinglýst“.

4. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna, sbr. lög nr. 85/1989:
     a.      Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ef beiðni um aflýsingu er færð í dagbók skv. 1. mgr. 6. gr. skulu aflýst skjöl ekki numin úr skjalahylkjum.
     b.      3. mgr. orðast svo:
                  Með reglugerð má ákveða að vistun skjala á tölvutæku formi komi í stað geymslu í skjalahylkjum skv. 1. mgr. Þann hátt má hafa á í sumum eða öllum þinglýsingaumdæm­um eftir því sem aðstæður leyfa. Takmarka má vörslu skjala á þann veg við ákveðnar tegundir skjala.

5. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna, sbr. lög nr. 85/1989:
     a.      Síðari málsliður 1. mgr. orðast svo: Verður þá slíkum yfirlýsingum ekki þinglýst nema sjálft veðbréfið eða endurrit þess, með áritun um veðbreytinguna, sé sýnt eða afhent þinglýsingarstjóra svo að hann geti gengið úr skugga um að hennar sé nægilega getið í veðbréfinu sjálfu.
     b.      2. mgr. fellur brott.

6. gr.


    Við 13. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Aflýsing skjals í tölvukerfi þinglýsinga fer þannig fram að stöðu skjals er breytt úr „þing­lýst“ í „aflýst“. Upplýsingar um aflýst skjöl skulu varðveittar í ferilskrá viðkomandi eignar í tölvukerfi. Síðan skal rita vottorð um aflýsinguna á frumrit skjalsins og geta þess hvenær hún fór fram og hvar hennar sé getið. Að svo vöxnu skal skila aðila sínu eintaki.

7. gr.


    1. málsl. 15. gr. laganna orðast svo: Skjali er þinglýst þegar það hefur verið fært í þing­lýsingabók eða fær stöðuna „þinglýst“ í tölvu, en forgangsáhrif þinglýsingar teljast frá þeim degi er skjal var afhent til þinglýsingar, sbr. þó 2. mgr. 14. gr., enda sé skjalið tækt til þing­lýsingar.

8. gr.


    Í stað lokamálsliðar 17. gr. laganna, sbr. lög nr. 85/1989, kemur nýr málsliður, svohljóð­andi: Að öðrum kosti dregur þinglýsingarstjóri strik yfir færslu skjals í þinglýsingabók eða afmáir skjal í tölvukerfi þinglýsinga, og falla þá brott áhrif þinglýsingarinnar.

9. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á 20. gr. laganna, sbr. lög nr. 85/1989:
     a.      2. mgr. orðast svo:
                  Binda skal þinglýsingu stofnskjals lóðar því skilyrði að þar komi fram:
              a.      heiti og landnúmer lóðar,
              b.      landnúmer þess lands sem lóð er tekin úr,
              c.      nafn og kennitala eiganda lands,
              d.      uppdráttur lóðar og lands sem staðfestur hefur verið af skipulagsyfirvöldum.
     b.      Við greinina bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Heimilt er að þinglýsa í einu stofnskjali myndun fleiri en einnar lóðar.

10. gr.


    Í stað lokamálsliðar 1. mgr. 22. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Vitundarvottar skulu geta kennitölu sinnar, eða eftir atvikum fæðingardags og heimilisfangs.

11. gr.


    Við 2. mgr. 24. gr. laganna, sbr. lög nr. 90/1991, bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Hafi veðandlag aðfarar- eða kyrrsetningargerðar ekki verið myndað í þinglýsingabók skal þing­lýsingarstjóra heimilt að mynda eign til bráðabirgða í tölvukerfi þinglýsingar. Slík skráning til bráðabirgða kemur ekki í stað þinglýsingar stofnskjals skv. 20. gr.

12. gr.


    Síðari málsliður 2. mgr. 39. gr. laganna orðast svo: Þinglýsing á staðfestingu rétthafa samkvæmt þinglýsingabók er þó fullnægjandi ef um er að ræða bréf sem gefin hafa verið út til ríkissjóðs, opinberra stofnana, banka, sparisjóða, lífeyrissjóða, tryggingafélaga eða verð­bréfasjóða.

13. gr.


    Lög þessi öðlast gildi 1. júní 1999.

Ákvæði til bráðabirgða.


I.


Myndun þinglýsingarhluta Landskrár fasteigna.


    Dómsmálaráðuneytið skal hafa umsjón með tölvuvæðingu þinglýsingabóka og samhæf­ingu þeirra við skrá Fasteignamats ríkisins í því skyni að mynda þinglýsingarhluta Landskrár fasteigna, í samræmi við lög um skráningu og mat fasteigna. Myndun þinglýsingarhluta Landskrár fasteigna fer eftir ákvæðum laga þessara og skal honum lokið innan fimm ára frá gildistöku þeirra.

II.


Skráning misræmis.


    Áður en upplýsingar úr þinglýsingabók eru færðar í tölvu skal þinglýsingarstjóri bera saman lýsingu fasteignar eins og hún er í skrá Fasteignamats ríkisins og þinglýsingabók. Komi fram misræmi skal þinglýsingarstjóri skrá um það athugasemdir í tölvukerfi þinglýs­inga.

III.


Greining misræmis og úrbætur.


    Sé fasteign í þinglýsingabók ekki auðkennd með fastanúmeri eða landnúmeri er þinglýs­ingarstjóra heimilt að nota auðkenni fasteignar í skrá Fasteignamats ríkisins, enda leiki ekki vafi á að um sömu eign sé að ræða.
    Við afmörkun landeignar í skrá Fasteignamats ríkisins skal leggja til grundvallar lýsingu marka í þinglýsingabók séu þau fyrir hendi, en ella skal miða við lýsingu í landamerkjaskrá. Séu upplýsingar um afmörkun landeignar ekki fyrir hendi, hvorki í þinglýsingabók né landa­merkjaskrá, skal þinglýsingarstjóra heimilt að leggja til grundvallar afmörkun samkvæmt skrám sveitarfélags.
    Skráning í þinglýsingabók skal lögð til grundvallar lúti misræmi að eftirfarandi:
     a.      heiti eignarhluta í fjöleignarhúsi,
     b.      afmörkun eða skiptingu fasteignar,
     c.      að fasteign sé skráð í þinglýsingabók en ekki í skrá Fasteignamats ríkisins,
     d.      öðru áður ótöldu.

IV.


Leiðrétting misræmis.


    Jafnhliða samanburði á þinglýsingabók og skrá Fasteignamats ríkisins skal þinglýsingar­stjóri tilkynna Fasteignamati ríkisins um það misræmi sem upp hefur komið skv. 3. mgr. bráðabirgðaákvæðis III með tilmælum um leiðréttingu.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Með frumvarpi þessu um breyting á þinglýsingalögum, nr. 39/1978, sem lagt er fram sam­hliða frumvarpi til laga um breyting á lögum um skráningu og mat fasteigna, nr. 94/1976, er lagður grundvöllur að því að myndað verði samhæft gagnasafn um fasteignir og réttindi sem þeim tengjast. Gagnasafn þetta ber heitið Landskrá fasteigna og er nánar um það fjallað í fyrrnefndu frumvarpi til laga um breyting á lögum um skráningu og mat fasteigna. Þar kemur meðal annars fram að þinglýsingarhluti Landskrár fasteigna geymi upplýsingar um þinglýsta eigendur og eignarhlut þeirra ásamt upplýsingum um veðbönd, kvaðir og annað er þinglýs­ingabók heldur. Í bráðabirgðaákvæðum frumvarps þessa er mælt fyrir um hvernig samræm­ingu verði náð á milli þinglýsingabóka og fasteignaskrár Fasteignamats ríkisins.
    Forsenda fyrir heildstæðu gagnasafni um fasteingir er tölvuvæðing þinglýsingabóka hjá embættum sýslumanna og samhæfing þeirra við skrár Fasteignamats ríkisins. Í 2. mgr. 8. gr. laganna er að finna heimild til að tölvuvæða þinglýsingabækur og hefur sú heimild verið nýtt við embætti sýslumanna í Reykjavík, á Ísafirði og í Hafnarfirði. Með frumvarpinu er lögð til sú breyting að þinglýsingabækur skuli tölvufærðar, en dómsmálaráðuneytið geti þó enn um sinn heimilað notkun eldri þinglýsingabóka og -spjalda þar til tölvuvæðingu þinglýsinga er lokið.
    Til þess að takast megi að koma á samhæfðri tölvuvinnslu allra skráningaraðila fasteigna í sameiginlegu skráningarkerfi er nauðsynlegt að taka upp reglur um hvernig fasteign verði mynduð í Landskrá fasteigna. Um það eru sett nánari fyrirmæli í fyrrgreindu frumvarpi til laga um breyting á lögum um skráningu og mat fasteigna auk fyrirmæla í 9. gr. þessa frum­varps. Í meginatriðum er það skilyrði fyrir myndun fasteignar í þinglýsingarhluta Landskrár fasteigna að efni stofnskjals hafi áður verið forskráð. Með forskráningu er hér átt við skrán­ingu á efni skjals til bráðabirgða sem færist úr svokallaðri biðskrá í þinglýsingabók við þing­lýsingu.
    Auk breytinga sem eru nauðsynlegar vegna Landskrár fasteigna eru lagðar til aðrar minni háttar breytingar á lögunum svo sem nánar verður rakið í athugasemdum við einstakar grein­ar frumvarpsins.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


     Um a-lið.
    Lagt er til að skjöl sem afhent eru til aflýsingar verði færð í dagbók ef hún er haldin í tölvu og jafnframt að kvittun fyrir móttöku skjals verði afhent. Með þessu munu réttaráhrif aflýsingar miðast við þann dag sem beiðni um aflýsingu var móttekin en ekki hvenær aflýs­ing fer fram eins og nú er. Einnig fæst með þessu sönnun um hvort og hvenær skjal hefur ver­ið afhent til aflýsingar. Jafnframt er með þessari breytingu stefnt að því að skráning aflýsingar í tölvukerfi þinglýsinga komi í stað útstrikunar og brottnáms skjala úr skjalahylkjum, en það mun leiða til nokkurs vinnusparnaðar fyrir starfslið þinglýsingarstjóra.
     Um b-lið.
    Í lögunum eru ekki sérstök fyrirmæli um myndun nýrrar fasteignar. Hefur ný fasteign einfaldlega verið mynduð með því að sett hefur verið nýtt blað í þinglýsingabók. Í Landskrá fasteigna er gert ráð fyrir að eign verði mynduð í þinglýsingabók með forskráningu hjá Fast­eignamati ríkisins og sú skráning hljóti síðan staðfestingu við þinglýsingu. Af þessum sökum er nauðsynlegt að veita þinglýsingarstjóra rýmri heimild til frávísunar skjals sem ekki full­nægir formkröfum um myndun eigna. Skv. 9. gr. frumvarpsins er þinglýsing stofnskjals lóðar bundin því skilyrði að nafn og kennitala eiganda lands komi fram. Tilgreining á kennitölu verður að teljast nauðsynleg á öllum skjölum er varða eignayfirfærslur á fasteignum. Þá er í 10. gr. frumvarpsins áskilið að vitundarvottar geti kennitölu sinnar, eða eftir atvikum fæð­ingardags og heimilisfangs. Með vísun til þess og með hliðsjón af því að kennitala er eina óbreytanlega tilgreiningin á einstaklingi búsettum hér á landi og allir lögaðilar í viðskiptum hafa kennitölu verður að telja að efni skjals sé ekki ótvírætt ef kennitölu útgefanda eða rétt­hafa vantar. Oft og tíðum geta þinglýsingarstjórar fundið kennitölur framangreindra, ef þær eru ekki tilgreindar, þar sem á öllum sýslumannsembættum er aðgangur að þjóðskrá. Ef svo reynist ekki unnt verður að líta svo á að skjali verði vísað frá skv. f-lið greinarinnar.

Um 2. gr.


    Hér er mælt fyrir um tilhögun skráningarforrits fyrir þinglýsingar. Gert er ráð fyrir að notað verði forrit fyrir þinglýsingar sem þróað hefur verið til samkipta við skráningarkerfi Fasteignamats ríkisins. Lagt er til að í reglugerð verði mælt fyrir um vistun þinglýsingar­gagna á tölvutæku formi og nauðsynlegar öryggisráðstafanir til verndar þeim. Einnig eru tek­in af öll tvímæli um eignarhald og forræði dómsmálaráðuneytisins á tölvugögnum þinglýs­inga, óháð því hvar eða hjá hverjum gögnin verða vistuð.

Um 3. gr.


    Í gildandi lögum er lýst verklagi við þinglýsingu í bækur en lýsingu skortir á verklagi þeg­ar þinglýsing er tölvufærð. Lagt er til að úr þessu verði bætt.

Um 4. gr.


     Um a-lið.
    Lagt er til að afrit þinglýsts skjals verði ekki numið úr skjalahylki ef beiðni um aflýsingu þess er færð í dagbók. Slík skráning og eftirfarandi aflýsing í tölvukerfi er talin fela í sér nægilega sönnun fyrir aflýsingu skjals, enda hafi frumrit skjals verið afhent aflýsingarbeið­anda með áritun um hana.
     Um b-lið.
    Í gildandi lögum er gert ráð fyrir þeim möguleika að geyma ljósmyndir þinglýstra skjala á míkrófilmum en sú heimild hefur aldrei verið notuð. Með nýrri tækni er sá kostur raunhæf­ari að þinglýst skjöl verði skönnuð og geymd á stafrænu formi. Sú geymsluaðferð verður sí­fellt algengari og ódýrari. Með þeirri aðferð skapast einnig möguleiki á sölu afrita þinglýstra skjala yfir tölvunet, en það hefði í för með sér nokkurn vinnusparnað fyrir starfslið þinglýs­ingarstjóra.

Um 5. gr.


    Lagt er til að lögfest verði venja sem myndast hefur um frágang lánastofnana á skjölum er varða veðflutning til þinglýsingar. Með því er gerð sú breyting að nægjanlegt er að ljósrit veðbréfs fylgi skjali um veðflutninginn. Undanþága til lánastofnana í 2. mgr. 12. gr. laganna þykir af þessum sökum ekki lengur eiga við.

Um 6. gr.


    Lagt er til að í lögunum verði kveðið á um verklag við aflýsingu í tölvukerfi þinglýsinga. Þegar aflýsing fer þannig fram er gert ráð fyrir að hætt verði að draga strik yfir efni þess af­rits sem þinglýsingarstjóri varðveitir. Þykir nægilegt að getið verði um aflýsinguna í aflýs­ingarskrá og að stöðu skjals verði breytt í þinglýsingarkerfi.

Um 7. og 8. gr.


    Vísað er til athugasemda við 3. gr. um skýringu á þessum ákvæðum.

Um 9. gr.


    Þessi breyting er nauðsynleg til að samræma megi skráningu fasteigna í skrá Fasteigna­mats ríkisins og í þinglýsingabók. Hugtakið stofnskjal er nýtt í lögum. Það hugtak er einnig notað í frumvarpi til laga um breyting á lögum um skráningu og mat fasteigna. Með stofn­skjali er átt við skjal sem felur í sér skilgreiningu nýrrar lóðar eða landeignar í Landskrá fasteigna. Með þinglýsingu þess hefur ný lóð eða landeign verið mynduð í Landskrá fast­eigna.

Um 10. gr.


    Heimilisfang og staða eru ekki lengur óyggjandi tilvísun fyrir vitundarvotta. Af þessum sökum og í samræmi við viðtekna venju þykir nægilegt að vitundarvottar séu tilgreindir með kennitölu. Fyrir þá votta sem af einhverjum ástæðum hafa ekki fengið úthlutað kennitölu frá Hagstofu Íslands væri nægilegt að geta fæðingardags og heimilisfangs.

Um 11. gr.


    Nauðsynlegt er að gera ráð fyrir myndun fasteignar í þinglýsingabók til bráðabirgða, en eingöngu í því skyni að tryggja aðfararveð og úthlutun við nauðungarsölu. Myndun fasteign­ar til bráðabirgða leysir eiganda lands þó ekki undan þeirri skyldu að gefa út stofnskjal og skrá það með formlegum hætti síðar.

Um 12. gr.


    Rétt þykir að gefa verðbréfasjóðum og tryggingafélögum kost á sama hagræði og aðrar lánastofnanir njóta samkvæmt ákvæðinu, enda er um að ræða aðila sem hafa opinbert starfs­leyfi og starfsábyrgðartryggingu.

Um 13. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringar.

Um bráðabirgðaákvæði I.


    Lagt er til að tölvuvæðing þinglýsingabóka verði í höndum dómsmálaráðuneytisins. Tölvuvæðing þinglýsinga er frumforsenda þess að unnt verði að samhæfa efni þinglýsinga­bóka og skrár Fasteignamats ríkisins. Við samhæfingu þessara skráa verður til þinglýsingarhluti Landskrár fasteigna sem er gagnasafn fyrir fasteignir á Íslandi samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna.

Um bráðabirgðaákvæði II.


    Hér er lagt til að athugasemdir um misræmi milli þinglýsingar og skrár Fasteignamats ríkisins verði skráð í tölvukerfi þinglýsinga. Nauðsynlegur undirbúningur að samræmingu þinglýsingabóka við skrá Fasteignamats ríkisins er að skrá það misræmi sem er nú á milli þessara tveggja skráa. Slíkar upplýsingar verða síðan grundvöllur verkáætlana um samræm­ingu skránna.

Um bráðabirgðaákvæði III.


    Fasteignir í þinglýsingabók eru að jafnaði eingöngu auðkenndar með götuheiti, húsnúmeri og íbúðarnúmeri. Af þessum sökum er nauðsynlegt að heimila þinglýsingarstjóra að draga ályktanir á milli heitis í þinglýsingabók og heitis og fastanúmers í skrá Fasteignamats ríkis­ins. Að því loknu verður fastanúmer óbreytanlegt auðkenni fasteignar í tölvufærðri þinglýs­ingabók.
    Þar sem marka fasteignar er getið í þinglýsingabók eða landamerkjaskrá skulu þau lögð til grundvallar í Landskrá fasteigna.
    Hér er og mælt fyrir um hvernig taka skuli einstökum tegundum misræmis sem í ljós kem­ur við samanburð þinglýsingabóka og skrár Fasteignamats ríkisins.

Um bráðabirgðaákvæði IV.


    Hér er lagt til að þinglýsingarstjóri tilgreini það misræmi sem upp hefur komið við athug­un á þinglýsingabókum og skrá Fasteignamats ríkisins. Ef misræmi er þess eðlis að það verði leiðrétt í skrá Fasteignamats ríkisins sér það um leiðréttinguna.



Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breyting á þinglýsingalögum, nr. 39/1978.

    Frumvarp þetta er lagt fram samhliða frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skráningu og mat fasteigna, nr. 94/1976. Með frumvörpunum er stefnt að myndun samhæfðs gagnagrunns um fasteignir og réttindi er tengjast þeim sem beri heitið Landskrá fasteigna. Hér er fjallað um áætluð áhrif beggja frumvarpanna á útgjöld ríkissjóðs og eru umsagnir fjárlagaskrifstofu með þeim báðum samhljóða.
    Samkvæmt frumvörpunum mun Landskrá fasteigna skiptast í stofnhluta fyrir skilgreining­ar og upplýsingar um afmörkun fasteigna, mannvirkjahluta fyrir byggingafræðilegar upplýs­ingar, fasteignamatshluta fyrir upplýsingar um matsforsendur og niðurstöður og þinglýs­ingarhluta fyrir upplýsingar um þinglýsta eigendur og eignarhlut þeirra ásamt upplýsingum um veðbönd, kvaðir og önnur atriði sem þinglýsingabók inniheldur. Frumvörpin miða að því að samræma þinglýsingabækur og fasteignaskrár Fasteignamats ríkisins en forsenda fyrir því er að þinglýsingabækur sýslumannsembætta verði á tölvutæku formi sem samhæft verði við skrá Fasteignamats ríkisins.

Stofnkostnaður.
    Smíði hugbúnaðarkerfis fyrir Landskrána hefur staðið yfir undanfarin ár og er að mestu lokið. Sú uppbygging hefur að hluta verið fjármögnuð með tekjum fyrir afnot af núverandi skrá Fasteignamats ríkisins. Einnig hafa verið veitt sérstök framlög til verkefnisins í fjárlög­um. Frá árinu 1993 til yfirstandandi árs hafa verið veittar alls um 50 m.kr. til Fasteignamats ríkisins en því fé hefur að stórum hluta verið varið til hönnunar kerfisins og til skilgreiningar á verklagsreglum við skráningu fasteigna. Dómsmálaráðuneytið hefur einnig varið um 12 m.kr. af sameiginlegum fjárlagalið sýslumanna til uppbyggingar á nýja þinglýsingarkerfinu undanfarin þrjú ár. Því til viðbótar voru veittar 8 m.kr. í fjáraukalögum ársins 1998 til til­rauna, hugbúnaðarsmíði og gangsetningar á þinglýsingarhluta kerfisins hjá þremur sýslu­mannsembættum og aðrar 8 m.kr. í fjárlögum þessa árs.
    Sá stofnkostnaður sem eftir er að fjármagna felst að stærstum hluta í færslu upplýsinga í nýjan þinglýsingarhluta Landskrárinnar. Annars vegar er þar um að ræða skráningu upplýs­inga úr þinglýsingabókum. Hins vegar er um að ræða yfirfærslu gagna úr eldra þinglýsingar­kerfi sem nú er starfrækt hjá Skýrr hf. fyrir sýslumannsembættin í Reykjavík, Hafnarfirði og Ísafirði. Í báðum tilvikum er gert ráð fyrir sérstakri yfirferð til að sannreyna færslurnar en þá þarf lögfræðingur að bera saman innslátt í tölvukerfi, þinglýsingabækur og skjöl og að því loknu að staðfesta færsluna. Ekki er gert ráð fyrir að starfsmenn viðkomandi embætta vinni að innslættinum ásamt öðrum störfum heldur þurfi að koma til viðbótarvinnuframlag sem greiða þarf sérstaklega fyrir. Til álita kemur að valinn hópur fari um landið til að annast verkið og er stefnt er því að yfirfærslu upplýsinganna verði lokið á fimm árum. Þá fellur til kostnaður í tengslum við uppsetningu og gangsetningu á þessum hluta kerfisins.
    Kostnaður við yfirfærslu gagnanna hefur verið metinn á 700 kr. fyrir hverja fasteign með hliðsjón af tilraunaverkefni sem staðið hefur yfir hjá embætti sýslumannsins í Kópavogi. Er þá miðað við að 35 mínútur þurfi til að tölvuskrá og staðfesta hverja eign og að sá tími skip­tist jafnt á milli skrifstofumanns og lögfræðings. Heildarfjöldi þinglýstra fasteigna og jarða er áætlaður um 133 þúsund í lok ársins 1998. Þar af eru um 54 þúsund eignir skráðar í eldra tölvukerfi fyrir þinglýsingar hjá Skýrr hf. Afganginn, um 79 þúsund eignir, þarf að yfirfæra úr þinglýsingabókum og er kostnaður við það áætlaður 55 m.kr. Gert er ráð fyrir að um 5 m.kr. af fjárveitingu dómsmálaráðuneytisins í gildandi fjárlögum nýtist til að mæta þeim út­gjöldum.
    Kostnaður í tengslum við flutning og umbreytingar á gögnum sem nú eru vistuð í eldra þinglýsingarkerfi hjá Skýrr hf. er lauslega áætlaður um 2 m.kr. Einnig er talið að u.þ.b. 10% misræmi sé á milli skráninga sýslumanna í því kerfi og í kerfi Fasteignamats ríkisins sem þurfi að leiðrétta við yfirfærsluna. Miðað er við að það taki 15 mínútur að meðaltali fyrir hverja eign og að vinna við þennan verkþátt kosti um 2 m.kr.
    Þá er gert ráð fyrir um 6 m.kr. útgjöldum vegna vinnu tölvuþjónustuaðila við uppsetningu tölvukerfisins hjá hverju sýslumannsembætti og kennslu á það. Útgjöld vegna frekari þróunar á hugbúnaðinum næstu árin og tengingu kerfisins við tekjubókhaldskerfi ríkisins eru talin nema um 5 m.kr. Loks eru ráðgerð kaup á tölvubúnaði, bæði fyrir skráningarstarfsmenn og lögfræðinga að fjárhæð 1 m.kr.
    Þegar allt er talið er stofnkostnaður dómsmálaráðuneytisins áætlaður eftirfarandi:

M.kr.
    Yfirfærsla úr þinglýsingabókum og staðfesting
50
    Flutningur gagna úr eldra kerfi hjá Skýrr hf. og leiðrétting
4
    Uppsetning á þinglýsingarkerfi, búnaður og kennsla
7
    Þróun hugbúnaðar
5
    Samtals
66

Rekstrarkostnaður.
    Gert er ráð fyrir að rekstrarkostnaður þinglýsingakerfisins verði fjármagnaður af núverandi fjárveitingum til safnliða dómsmálaráðuneytis og sýslumannsembætta og er raunar talið að kerfið muni leiða til margvíslegs vinnuhagræðis og sparnaðar í rekstri embættanna. Ár­legur kostnaður við rekstur eldra þinglýsingarkerfis hjá Skýrr hf. hefur verið innan við 1 m.kr. og reiknað er með því að hann falli smám saman niður en þar verða fyrst um sinn vist­aðar áfram upplýsingar um þinglýsingar bifreiða. Hins vegar er gert ráð fyrir aukinni fjár­þörf hjá dómsmálaráðuneytinu vegna 1,4 m.kr. kostnaðar við þjónustusamning fyrir nýja þinglýsingarkerfið.
    Þá er áætlað að rekstrarkostnaður tölvukerfa hjá Fasteignamati ríkisins aukist um 15 m.kr. ári vegna aukins umfangs kerfisins og aukinnar þjónustu í tengslum við það.
    Í athugasemdum með frumvarpi til breytingar á lögum nr. 94/1976, um skráningu og mat fasteigna, kemur fram að fyrirhugað er að koma á fót fimm manna framkvæmdanefnd til að hafa eftirlit með yfirfærslu upplýsinga úr eldri skrám í nýtt kerfi næstu fimm árin. Reiknað er með að útgjöld vegna nefndarinnar verði um 0,5 m.kr. á ári.
    Fyrirhugað er að við myndun Landskrár fasteigna falli niður afnotagjöld sem sýslumanns­embætti og ríkisskattstjóri hafa greitt fyrir aðgang að fasteignamatsskrám. Miðað er við að fjárveitingar í fjárlögum lækki vegna þessa um 9,5 m.kr. hjá sýslumannsembættum og um 5,5 m.kr. hjá ríkisskattstjóra en færist í staðinn sem framlag til Fasteignamats ríkisins. Gjaldskrá fyrir sölu upplýsinga úr Landskránni hefur að öðru leyti ekki verið útfærð á þessu stigi að því marki að unnt sé að setja fram áætlanir um breytta tekjuöflun en líklegt þykir að auka megi tekjur nokkuð frá því sem nú er.