Ferill 408. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 877  —  408. mál.




Svar



iðnaðarráðherra við fyrirspurn Gísla S. Einarssonar, Kristínar Halldórsdóttur og Sigríðar Jóhannesdóttur um ráðstöfunarfé ráðherra.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig hefur verið varið 8 millj. kr. framlagi til ráðstöfunar samkvæmt ákvörðun ráðherra á lið 11-199 í fjárlögum 1998, sundurliðað eftir verkefnum?

    Ákveðið hefur verið að verja 150 þús. kr. til að mæta kostnaði við varðveislu mótor­bátsins Skaftfellings í samvinnu við fjármálaráðherra og menntamálaráðherra, 2.000 þús. kr. til Atvinnutryggingarsjóðs kvenna og 5.850 þús. kr. vegna tækjakaupa til upplýsingamála og heimasíðugerðar á vegum ráðuneytisins.