Ferill 311. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1007  —  311. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, nr. 78/1997.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið.
    Með frumvarpinu er lagt til að héraðsprestar íslensku þjóðkirkjunnar séu ráðnir til fimm ára í senn til samræmis við það sem gildir um sóknarpresta og presta, sbr. 36. gr. og 40. gr. laga nr. 78/1997, um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar. Samþykkt var á kirkjuþingi árið 1997 að leggja til þessa breytingu á lögunum og við meðferð málsins í nefndinni kom fram að almenn samstaða er um hana.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins.
    Valgerður Sverrisdóttir, Hjálmar Jónsson, Ögmundur Jónasson og Kristín Halldórsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 5. mars 1999.



Sólveig Pétursdóttir,


form., frsm.


Jón Kristjánsson.


Árni R. Árnason.


                                  

Jóhanna Sigurðardóttir.


Einar K. Guðfinnsson.