Ferill 510. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1073 — 510. mál.
Frumvarp til laga
um Háskólann á Akureyri.
(Eftir 2. umr., 9. mars.)
I. KAFLI
Hlutverk.
1. gr.
II. KAFLI
Kennarar og stúdentar.
2. gr.
Prófessorar, dósentar og lektorar hafa einir kennslu og rannsóknir að aðalstarfi. Aðjúnktar eru ráðnir til eins árs hið skemmsta. Stundakennarar eru ráðnir til eins árs eða skemmri tíma.
Háskólaráð setur nánari reglur um starfsskyldur kennara.
3. gr.
Umsóknum um prófessorsstarf, dósents- og lektorsstörf skulu fylgja upplýsingar um háskólamenntun, vísindastörf og önnur störf, svo og ritsmíðar og rannsóknir umsækjenda.
Rektor skal skipa þriggja manna dómnefnd eftir tilnefningu háskólaráðs og menntamálaráðherra til tveggja ára í senn, til þess að dæma um hæfi umsækjenda til að gegna starfi prófessors, dósents eða lektors. Háskólaráð tilnefnir tvo menn í nefndina og er annar þeirra formaður. Annar fulltrúa háskólaráðs skal starfa utan háskólans. Menntamálaráðherra tilnefnir einn mann í nefndina. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt.
Í dómnefnd má skipa þá eina sem lokið hafa meistaraprófi úr háskóla.
Að ábendingu viðkomandi deildar skal rektor hverju sinni tilnefna sérfræðing til ráðgjafar fyrir dómnefnd um mat á fræðistörfum umsækjenda.
Dómnefnd skal gefa rökstutt álit um hvort ráða megi af vísindagildi rita og rannsókna umsækjanda, svo og af námsferli hans og störfum, að hann sé hæfur til að gegna starfinu. Engum manni má veita starf prófessors, dósents eða lektors nema meiri hluti dómnefndar hafi látið það álit í ljós að hann sé til þess hæfur.
Háskólaráði er heimilt að setja reglur sem kveða á um að ákvæði 3. mgr. gildi við ráðningu sérfræðinga á sviði rannsókna og annarra fræðistarfa við háskólann.
Heimilt er að flytja lektor úr lektorsstarfi í dósentsstarf og dósent úr dósentsstarfi í prófessorsstarf, enda liggi fyrir hæfnisdómur dómnefndar.
Háskólaráð setur nánari reglur um nýráðningar og framgang í starfi þar sem einnig er kveðið á um störf dómnefnda og meðferð umsókna.
4. gr.
Við skrásetningu til náms greiðir stúdent skrásetningargjald, allt að 25.000 kr. Heimilt er að taka 15% hærra gjald af þeim sem fá leyfi til skrásetningar utan auglýstra skrásetningartímabila.
III. KAFLI
Stjórnskipulag.
5. gr.
Í háskólaráði eiga sæti:
1. Rektor, sem er sjálfkjörinn í ráðið og er jafnframt forseti þess.
2. Tveir fulltrúar kennara sem ráðnir eru ótímabundið við skólann og tveir til vara, kosnir á almennum fundi þeirra til tveggja ára í senn.
3. Einn fulltrúi stúdenta og einn til vara, kosnir til tveggja ára í senn samkvæmt reglum stúdentafélags háskólans.
4. Einn fulltrúi skipaður af menntamálaráðherra og einn til vara til tveggja ára í senn.
Varaforseta kýs ráðið úr hópi háskólaráðsfulltrúa kennara.
.
6. gr.
Háskólaráðsfundur er ályktunarhæfur ef helmingur atkvæðisbærra fulltrúa sækir fund hið fæsta. Afl atkvæða ræður úrslitum mála. Ef atkvæði eru jöfn sker atkvæði forseta úr. Varafulltrúar skulu sitja fundi háskólaráðs í forföllum aðalfulltrúa.
7. gr.
8. gr.
Stofnanir og einstakir starfsmenn háskólans, sem ekki lúta sérstakri stjórn, heyra beint undir embætti rektors.
9. gr.
Á grundvelli námskrár skal árlega gefa út kennsluskrá þar sem m.a. er gerð grein fyrir tilhögun náms, kennsluháttum og námsmati. Í kennsluskrá eða öðrum starfsáætlunum einstakra deilda skal enn fremur kveðið á um missira- eða annaskiptingu, kennslutíma, próftímabil, leyfi og önnur atriði er varða skipulag náms.
Háskólaráð staðfestir námskrár og kennsluskrár, en deildarráð ber ábyrgð á gerð þeirra.
IV. KAFLI
Kennsla, framkvæmd prófa, agaviðurlög.
10. gr.
Stúdent á rétt til að fá útskýringar kennara á mati skriflegrar úrlausnar sinnar ef hann æskir þess innan 15 daga frá birtingu einkunnar. Vilji stúdent sem ekki hefur staðist próf þá eigi una mati kennarans getur hann snúið sér til viðkomandi deildarforseta. Skal þá prófdómari skipaður í hverju tilviki. Einnig getur kennari eða meiri hluti stúdenta, telji þeir til þess sérstaka ástæðu, óskað skipunar prófdómara í einstöku prófi. Háskólarektor skipar prófdómendur að fengnum tillögum háskóladeildar.
11. gr.
V. KAFLI
Rannsóknir, bókasafn o.fl.
12. gr.
Rannsóknastofnunin skal eftir því sem aðstæður leyfa veita stúdentum skólans ráðgjöf og fræðslu um skipulagningu og framkvæmd rannsókna.
Háskólaráð skal setja reglur, sem menntamálaráðherra staðfestir, um starfsemi rannsóknastofnunarinnar, um skipan stjórnar og gjaldtöku fyrir þjónustu sem rannsóknastofnunin veitir.
Heimilt er háskólaráði að stofna sérstaka rannsóknarsjóði. Skal um þá sett skipulagsskrá.
13. gr.
14. gr.
Háskólaráði er heimilt að semja við félög stúdenta, hollvinasamtök, einstaklinga, samtök þeirra og fyrirtæki eða opinberar stofnanir um að taka að sér þjónustu fyrir hönd Háskólans á Akureyri enda sé farið að ákvæðum í 30. gr. laga um fjárreiður ríkisins.
15. gr.
16. gr.
Háskólaráð setur sérstakar reglur um veitingu doktorsnafnbótar, þ.m.t. um doktorsnám og um vörn doktorsritgerða.
VI. KAFLI
Gildistaka, reglugerð o.fl.
17. gr.
18. gr.
19. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
Núverandi rektor Háskólans á Akureyri situr út yfirstandandi kjörtímabil sitt, en að því loknu skal skipa rektor til fimm ára skv. 7. gr. laga þessara.